fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Annað skurðarbrettið er sannkölluð bakteríusprengja: Hvort brettið er það?

Ritstjórn Pressunnar
Laugardaginn 22. september 2018 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mörgum heimilum eru til skurðarbretti úr plasti eða tré, til nota í eldhúsinu. En það er mikill munur á þeim bakteríufjölda sem leynist í brettunum. Vísindamenn hafa rannsakað þetta nokkrum sinnum í gegnum tíðina og niðurstöðurnar eru alltaf á einn veg.

Það eru plastbrettin sem eru sannkallaðar bakteríusprengjur en trébrettin eru mun betri hvað þetta varðar og innihalda ekki nærri því eins margar bakteríur. Vísindamenn segja að trébretti sem hafa verið mikið notuð og hafa mörg för eftir hnífa verði næstum jafn hrein og ný trébretti eftir þvott. Plastbretti með mörgum hnífsförum sé hins vegar ómögulegt að þrífa nægilega vel og sótthreinsa handvirkt. Með handvirkt eiga þeir við að fólk noti heitt vatn, uppþvottalög og svamp.

Vísindamenn segja að bakteríur sé einnig að finna í trébrettum en að þeim fjölgi ekki og þær deyji smátt og smátt. Það sama eigi ekki við um plastbretti. Vefmiðillin an.no segir að samkvæmt niðurstöðum vísindamanna þá telji þeir að plastbretti geti verið hættuleg heilsu fólks en það séu trébretti ekki.

Eldri rannsóknir hafa einnig staðfest þetta en byrjað var að rannsaka þetta á tíunda áratug síðustu aldar. Hugsanlegt er talið að bakteríur sem sitja á trébrettum sitji einfaldlega fastar á þeim og geti ekki komist í matinn og þegar vatn komist síðan í snertingu við trébrettin skolist bakteríurnar af því.

Fólk má þó ekki láta hjá líða að þvo trébrettin og það verður að þvo þau vel og vandlega til að tryggja að fyllsta hreinlætis sé gætt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Högg í maga enskra stórliða

Högg í maga enskra stórliða
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Hversu oft á að þvo handklæði og sængurver?

Hversu oft á að þvo handklæði og sængurver?
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Léttist um 74 kíló með því að hætta einu sem flestar mæður gera

Léttist um 74 kíló með því að hætta einu sem flestar mæður gera
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Rúllaði Braga í bankann og vildi taka út pening – Óhugnanlegt atvik endaði með handtöku

Rúllaði Braga í bankann og vildi taka út pening – Óhugnanlegt atvik endaði með handtöku
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.