Það hafa allir mismunandi hæfileika og þegar fólk finnur sér áhugamál sem það virkilega elskar, þá geta ótrúlegir hlutir gerst. Lengi hefur verið sagt við fólk að æfingin skapi meistarann og á það svo sannarlega við í tilfelli Alejandra de Zuniga.
Alejandra hefur lagt allan sinn metnað í það að búa til dúkkur sem líta út eins og alvöru börn og er útkoman hreint út sagt ótrúleg.
Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá eina af dúkkunum sem Alejandra hefur búið til en þær eru gerðar úr silíkoni og eru virkilega fallegar og alveg ótrúlega raunverulegar.
https://www.facebook.com/829970077176453/videos/920693668104093/?t=18
Hér má svo sjá fleiri dúkkur sem Alejandra hefur gert og sjá má að mikil vinna liggur á bakvið hverja og eina.