fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

13 íslenskar týpur til að varast

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 29. ágúst 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greiningardeild Kynlífspressunnar hefur lagst í mikla rannsóknarvinnu og birtir nú lista sem gæti forðað þér frá vandræðum og volæði í einkalífinu. Hér eru þrettán týpur sem þú ættir að varast með öllum ráðum.

Konan sem gengur með hundinn sinn í veski. Líklega mun hún sýna þessu hundkvikindi mun meiri ást en þér. Ef hún leyfir hundinum að sofa uppi í rúmi hjá sér í þokkabót skaltu hlaupa eins og fætur toga.

Karlmenn sem birta mynd af sér í íþróttatreyju á samfélagsmiðlum á laugardögum. Ef hann er líka með fótboltafélagstattú þá færðu nálgunarbann. Ef hann klæðir börnin sín í fótboltabúning og myndar þau, hringdu þá tafarlaust í barnaverndaryfirvöld.

Þessi gaur fær ekki bóner yfir öðru en boltanum

Konur sem eru alltaf í facebook leikjum og senda þér endalaust beiðnir í leikina. Blokkaðu hana strax!

Tölvuleikur Satans

Allir gaurar með áhuga á bílum. Hann heldur langar ræður um knastása og finnst í alvöru í lagi að eyða mörgum klukkutímum í hverri viku í að pússa mælaborðið. Þetta er gaurinn sem kaupir sér nýjar felgur á bílinn, en gæti stofnað munaðarleysingjaheimili í fátæku landi fyrir sama pening.

Ástin mín á ég að nudda þig?

Dramatíska konan sem drekkur áfengi og eyðir kvöldinu grenjandi úti í horni. Það segir sig sjálft að meiriháttar persónuleikabreyting samfara áfengisdrykkju er skýr og hávær viðvörunarbjalla.


Talaðu aðeins við mig, ha… uhuuuu!

Konan sem fer á fyllerí og hringir ógeðslega hress í Sigga Hlö. „Við erum hérna sex saman í bústað á leiðinni í pottinn, viltu ekki skella þér hérna uppeftir?“. Svo hlær hún hásum salemhlátri og vinkonurnar æpa í bakgrunninum, „vúúúhúúú!“.

Geðveikt hress í pottinum!

Konur sem lesa ekki bækur. Ef hún býður þér í mat og þú sérð ekki eina einustu bók í íbúðinni skaltu feika gallsteinakast og koma þér burtu í snarhasti.

Ég er svo viðkvæmur í gallblöðrunni, í alvöru sko!

Eindregnir stuðningsmenn lögleiðingar kannabisneyslu. Þetta er gaurinn sem hefur aldrei skoðanir á neinu í fjölmiðlum nema þegar greinar birtast um neikvæðar hliðar kannabisneyslu. Frekar líklegt er að persónulegu hreinlæti sé ábótavant. Í samræðum þarftu að gera ráð fyrir „laggi“, það sem þú segir berst til réttrar heilastöðvar mun síðar en hjá flestum. Líklegt er að hann muni sitja í sófanum á nærbuxum og í playstation á milli tveggja tómra pizzukassa þegar þú bankar upp á með verðandi tengdamóður hans.

Bíddöööö, varstu að segja eitthvað?

Karlar sem tala um hvað þeir taka í bekk. Ef hann læðir þessu inn í samræðurnar á fyrsta deiti skaltu huga að því að feika andlát þitt.

Kjarasamningar hvað? Veistu hvað ég tek í pressu?

Konur sem kalla karlmenn dúllur eða krútt, og karlmenn sem kalla konur prinsessur. Slíkt er ekki hægt að leiða hjá sér, ekki einusinni kvöldstund.

Ég er ekki fokking prinsessa!

Karlmenn sem tala um hvað þeir eiga  mikla peninga. Sumir virðast halda að það liggi einhver sjarmi í spikfeitu debetkorti – svo er ekki. Peningatal er hallærislegt og slekkur losta, sem mögulega hefur náð að byggjast upp, í 89% tilvika.

Bíddaðieins, þarf að tékka á Nasdaq

Gaurinn sem hlustar á Útvarp Sögu (og meinar það), horfir á  ÍNN og lækar allt sem Jón Valur setur á Facebook.

Fólk sem tekur mark á svona listum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.