Að hitta foreldra makans í fyrsta skiptið getur verið mjög stressandi fyrir marga. Það er margt sem getur komið upp á og sumir eiga það til að mikla þessa heimsókn of mikið fyrir sér.
Hvað ef þeim líkar ekki við þig? Hvað ef þú brýtur vasann sem þau fengu í brúðkaupsgjöf? Hvað ef fjölskylduhundurinn þolir þig ekki?
Það eru margar svona spurningar sem eiga það til að poppa upp í kollinn á þeim sem er að fara að hitta tilvonandi tengdaforeldra. Það var þess vegna sem Metro gerði lista af hlutum fyrir maka til þess að hafa í huga þegar þeir fara í fyrsta matarboðið til tengdó.
Vertu góður gestur – Þú þarft ekki að reyna of mikið á þig
- Foreldrar eru eins og hundar, þeir geta þefað uppi áhyggjur.
- Það getur verið gott að mæta með vínflösku, blóm eða súkkulaði.
- Þú verður að vera í hreinum fötum, annað er aldrei í lagi.
- Ekki hanga í símanum allt matarboðið.
- EKKI spyrja hvort þú getir hjálpað til. Gakktu rakleiðis inn í eldhús og hjálpaðu til við að leggja á borð. Eftir matinn stendur þú upp og hjálpar til við að fara með leirtauið inn í eldhús. Ef þú spyrð þá munu þau segja nei, en með þessu móti ert þú að sýna fram á að hjálpa til sé sjálfsagður hlutur. Þau þurfa ekki að þakka þér fyrir.
Ekki monta þig
- Ekki monta þig af neinu.
- Þetta eru mistökin sem flestir gera, þeir reyna að sýna hvað í þeim býr við matarborðið.
- Við vitum alveg að þú vilt heilla tengdaforeldrana með því að lauma því inn að þú sért nýbúinn að fá launahækkun. Slepptu því.
- Tengdaforeldrar þínir munu taka eftir því hvort þú ert metnaðarfullur og klár einstaklingur. Þú þarft ekki ljósaskylti til þess að auglýsa það.
- Ræddu frekar um bækur og bíómyndir sem þér líkar.
Ekkert klám
- Í Guðana bænum, það er vandræðalegt fyrir alla þegar þið farið í sleik við matarborðið.
- Ekki heldur mata hvort annað, hvað þá ef þið eruð á veitingastað.
- Geymið allt slíkt þar til þið eruð ein.
Ekki skipta þér af því sem þér kemur ekki við
- Sumar samræður mátt þú taka þátt í. Til dæmis umræður um fótbolta eða bíómyndir.
- Lestu aðstæðurnar. Ef maki þinn er að ræða við foreldra sína um það hvort hann eigi að hætta í vinnunni og þú sérð að mikill hiti er að færast í samræðurnar. Ekki þá skipta þér af.
- Það er miklu líklegra til árangurs að reyna að breyta umræðuefninu og hrósa fyrir matinn.
Slepptu því að fá þér í glas
- Ef þú heldur, af einhverri ástæðu, að það sé sniðugt að fá sér nokkur glös af Gin og Tonic með tengdaforeldrum þínum í fyrsta matarboðinu þá getum við látið þig vita hér og nú að það er ekki góð hugmynd.
Ekki reyna of mikið að vera fyndin
- Það eru ýmsir kostir sem foreldrar vilja sjá í maka barnanna sinna. Heiðarleiki, greind og reglusemi er meðal annars á þeim lista. Það sem er ekki á listanum eru stand-up grínistar.
- Gullna reglan er að reyna ekki of mikið.
- Allar fjölskyldur eru mismunandi. Sumar hafa svartan húmor, aðrar ekki. Þú þarft tíma til þess að átta þig á því hvernig tengdaforeldrar þínir eru. Það er alltaf tími til þess að vera fyndin seinna.
Fylgdu matarboðinu eftir með því að senda skilaboð eða hringja
- Það er alltaf gott að þakka vel fyrir sig.
- Daginn eftir matarboðið er alltaf sniðugt að senda tengdaforeldrunum skilaboð eða hringja í þau og þakka kærlega fyrir þig.