Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður spreytti sig í þættinum Í Takt við tímann sem sýndur var á vef DV í gær. Í þættinum gerði Daði Freyr tilraun til þess að semja lag frá grunni á aðeins tíu mínútum. Daði Freyr mun svo spila í beinni á vef DV í dag.
Íslendingar tóku ástfóstri við Daða Frey þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins á seinasta ári með laginu: „Hvað með það?“
Daði Freyr ætlar eins og áður segir að mæta í stúdíó DV klukkan 13:00 í dag og spila nokkur lög sem sýnd verða í beinni útsendingu á vef DV og á Facebook-síðu DV.