fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Kristbjörg Ásta kom að bílslysi tíu barna móðurinnar: „Ég hef aldrei séð annað eins“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 7. júní 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristbjörg Ásta Böðvarsdóttir þakkar fyrir að ekki fór verr þegar hún var að keyra heim frá Akureyri með dóttur sína í bílnum síðustu helgi. Kristbjörg keyrði í rólegheitum upp hæð þegar bíll birtist skyndilega beint fyrir framan hana á fullri ferð.

„Ég og dóttir mín fórum til Akureyrar um helgina þar sem systir mín var að fermast. Við mæðgur skemmtum okkur vel fyrir norðan en þegar við vorum að keyra heim á sunnudeginum birtist allt í einu bíll beint fyrir framan mig þegar ég er að keyra upp hæð. Ég snar bremsaði strax og var komin niður í sennilega 50-60 kílómetra hraða þegar bíllinn rétt nær að sveigja sér aftur yfir á sinn vegarhelming. Ég var ótrúlega heppin að ekki hafi farið verr,“ segir Kristbjörg í færslu sinni á Amare.

Komu að hörmulegu bílslysi daginn eftir

Það sem truflaði Kristbjörgu mest var að hugsa til þess að manneskjan sem kom á móti henni virtist hreinlega ekki hafa geta beðið með það að taka fram úr þangað til að aðstæður væru orðnar öruggar.

„Var án gríns svona mikilvægt að komast aðeins fyrr á áfangastað að manneskjan var tilbúin að fórna lífi sínu, farþega sinna og þeim sem kom á móti, sem í þessu tilfelli var ég og börnin mín.“

Daginn eftir fór Kristbjörg í bæinn með vinkonu sinni og dætrum þeirra. Á leiðinni heim aftur komu þær að hörmulegu bílslysi sem var nýbúið að gerast.

„Við stoppuðum auðvitað bílinn og fórum strax út að aðstoða. Ég hef aldrei séð annað eins. Við vinkonurnar reyndum allt sem við gátum til að hjálpa til og vorum hjá þeim þar til fagmenn komu og tóku við. Við vorum fastar þarna í dálítinn tíma á meðan sjúkrabílarnir voru að fara og lögreglan ræddi aðeins við okkur.“

Ekki þess virði að hætta lífinu til að komast fyrr heim

Þegar Kristbjörg keyrði í burtu frá slysstaðnum gat hún ekki annað en hugsað um hversu nálægt því hún var að vera í nákvæmlega þessum sporum deginum áður.

„Ég hugsaði hversu heppin ég væri að fá að fara heim og vera með fjölskyldunni minni. Það er ótrúlegt hvað lífið getur breyst hratt og þetta minnti mann á hvað það er mikilvægt að njóta lífsins á meðan maður getur. Við vitum aldrei hvenær slysin gerast. Það er líka gott að muna það að vera ekki að taka neinar óþarfa áhættu í umferðinni. Það er einfaldlega ekki þess virði að hætta lífinu bara til þess að komast aðeins fyrr heim.“

Hægt er að fylgjast með Kristbjörgu á Instagram: kristbjorgasta96
Og Snapchat: mommusnap

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Högg í maga enskra stórliða

Högg í maga enskra stórliða
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Hversu oft á að þvo handklæði og sængurver?

Hversu oft á að þvo handklæði og sængurver?
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Léttist um 74 kíló með því að hætta einu sem flestar mæður gera

Léttist um 74 kíló með því að hætta einu sem flestar mæður gera

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.