Tenerife er mjög vinsæll ferðamannastaður en hann hentar einstaklega vel að okkar mati fyrir þá sem vilja reyna að slappa af og eru með barn/börn með í för.
Ég tek það þó fram að það er ekki beinlínis frí að vera erlendis með barn heldur er betra að horfa á það sem ferðalag…þar sem stöku slökun í sól er möguleg & kokteill um hádegi á virkum degi er samfélagslega samþykktur!
Nokkur ráð fyrir barnafólk:
– Sólhattur er möst, ég keypti hvítan sem passaði við allan fatnað en hann var keyptur í H&M hérna heima áður en við fórum ef ske kynni að sólin myndi taka á móti okkur strax á flugvellinum. Hann kostaði eitthvað í kring um þúsund krónur minnir mig.
– Sólarvarnarfroðan frá Evy (Proderm) er auðveld og þægileg i notkun og tiltölulega litið klístruð. Umfram allt er þægilegt að maka henni á barnið!
– Snakkpokinn bjargaði okkur oft frá kerrusetupirring. Ég keypti litla klísturhelda rennda poka í Söstrene Grene. Í þá setti ég ýmist barnakex, Ellu puffs, cherios, rúsínur, vínber eða saltstangir (saltið getur verið gott i hitanum).
– Sörf-gallinn, barnið getur verið viðkvæmt fyrir sólinni og því er gott að verða sér út um langerma sundgalla á barnið, mér fannst þeir ekki auðfundnir og hvað þá að hægt væri að velja um einhvern smekklegan en við fundum okkar í Primark eftir nokkra leit.
– Leikföng í flugið. Flugið til Tenerife eru tæpir 6 timar og það hefur enginn smákrakki gaman að því allan tímann.
– Gráar sokkabuxur urðu skyndilegt möst hjá okkur en litli maðurinn er ekki alveg farinn að ganga og til þess að geta verið sumarlegur i stuttbuxum var stundum nauðsynlegt að hafa hann i sokkabuxum til þess að hlífa fótleggjunum, en oft var hann að skríða á stéttinni úti og þess háttar. Hvítar sokkabuxur eru fljótar að verða skítugar og það vill enginn vera í svörtum sokkabuxum í sólinni.
– Góð kerra er aðalatriðið í svona ferð en við eigum Silver cross Reflex eins og allir Íslendingar held ég. Hún kom sér mjög vel í ferðinni en skerminn er hægt að leggja alveg niður sem er mjög hentugt fyrir síestuna hjá litla fólkinu.
– Vatnskanna/flaska er mikilvæg en ég fann fyrir því að ég þurfti að minna sjálfa mig á að gefa barninu að drekka mun oftar en við erum vön.
– Blautþurrkur eru þarfaþing og vanalega nota ég waterwipes en þær eru ekki með neinum ilmefnum eða neinu. Þær henta því fínt í bleyjuskipti, klístraða putta, skítugt andlit & þegar búið er að sulla mat í fötin. Mínar kláruðust og það er ekkert smá magn af sápu og ilmefnum i algengustu þurrkunum hér. En ég fann ágætar blæði bleyjur og blautþurrkur í Carrefour sem er eins konar Wallmart Spánverjans.
– Stílar er eitthvað sem gott er að hafa með hvert sem maður fer. Flensa eða verkir gera ekki boð á undan sér og það er ágætt að vera með Nurofen (barna ibufen) og stíla meðferðis til öryggis.
Hér getið þið svo séð smá brot af fríinu okkar: