Fótboltaaðdáandi sem gekk upp að fréttakonu í miðri útsendingu og reyndi að kyssa hana, fékk skammir að launum þegar hún stöðvaði manninn og sagði honum til syndanna. Hefur fréttamanninum verið hrósað víða fyrir viðbrögðin en maðurinn fengið skammir.
Julia Guimarães var í miðri útsendingu í Rússlandi á sunnudaginn síðasta þegar æstur fótboltaaðdáandi gekk upp að henni og reyndi að kyssa hana á kinnina.
Guimarães stöðvaði manninn áður en honum tókst ætlunarverk sitt og náðist það á upptöku þegar hún skammaði hann fyrir ósæmilega hegðun sína.
Guimarães: „Ekki gera þetta. Aldrei gera þetta aftur?“
Fótboltaaðdáandi: „Fyrirgefðu, fyrirgefðu.“
Guimarães: „Ég hefði aldrei leyft þér að gera þetta? Þetta er ekki kurteisi? Þetta er ekki rétt. Aldrei gera þetta. Aldrei gera þetta við konu aftur? Sýndu virðingu.“
Eftir atvikið greindi Guimarães frá því að þetta væri í annað skiptið sem aðdáandi hefði reynt að kyssa hana síðan hún kom til Rússlands. Segist hún ekki skilja hvers vegna menn telji sér trú um að þessi hegðun sé í lagi. Einnig greindi hún frá því að henni finndist hún hjálparvana í þessum aðstæðum.
Myndbandið má sjá hér að neðan:
https://youtu.be/VrhqRXPsYUw