fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Snædís Bergmann: „Er nútíma uppeldi að fara með okkur?“

Lady.is
Mánudaginn 25. júní 2018 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég las svo frábæra grein á netinu um daginn að ég ákvað að þýða hana lauslega og setja hana hér inn. Þessi grein fékk mig nefnilega virkilega til að hugsa og held ég að allir foreldrar hefðu gott að því að lesa hana. Greinin er upprunalega eftir Victoria Prooday.

Inn á heimilum okkar er óumtalað vandamál að þróast sem snertir það dýrmætasta sem við eigum – börnin okkar. Börn í dag eru mörg hver að þróa með sér andlega vanlíðan og hegðunarvanda. Ef talað er við kennara og sérfræðinga hafa þeir allir sömu áhyggjur, það sem meira er, sérfræðingar hafa verið að sýna fram á ógnvekjandi tölfræði um mikla og stöðuga aukningu á geðsjúkdómum barna, hér kemur smá tölfræði:

1 af hverju 5 barni á við geðheilsuvandamál að stríða
43% aukning á ADHD
37% aukning á þunglyndi unglinga
100% aukning á sjálfsmorðs tíðni barna 10-14. ára

Hversu mörg sönnunargögn þurfum við áður en við vöknum?

Nei, auking greining á börnum, er ekki ástæðan!

Nei, „þessi börn fæddust öll svona“, er ekki ástæðan!

Nei, þetta er allt skólakerfinu að kenna, er ekki ástæðan!

Já, eins ömurlegt og það er verður að viðurkennast að í mörgum tilfellum eru það við foreldrarnir sem erum svarið við öllum erfiðleikum barnanna okkar.

Það er vísindalega sannað að umhverfið sem börn alast upp í hefur mikil áhrif á heilastarfssemi þeirra. Það umhverfi sem foreldrar eru að bjóða börnunum sínum upp á í dag er því miður, í mörgum tilfellum, að stýra heila barnanna í ranga átt. Auðvitað eru alltaf einhver börn sem eru fædd með ákveðna eiginleika, fötlun eða slíkt og sama hvað foreldrar hafa gert og reynt halda börnin áfram að ströggla, þetta eru ekki börnin sem verið er að tala um hér. Hér er verið að tala um hin börnin sem mótast af því umhverfi sem foreldrar þeirra hafa skapað þeim. Victoria hefur orðið vitni af því í gegnum sínar rannsóknir að um leið og foreldrar breyta um sjónarhorn og horfa öðruvísi á uppeldið þá breytast þessi börn.

Hvað er að?
Börn í dag eru svipt þeim grundvallaratriðum sem stuðlar að heilbrigðri æsku, eins og:

  • Foreldrar eru tilfinningalega ekki til staðar
  • Takmörk og leiðbeiningar til barna eru ekki nægilega vel skilgreind.
  • Skyldum og ábyrgð
  • Jafnvægi á svefni og hreyfingu barna
  • Hreyfingu og útiveru
  • Skapandi leikjum, félaglegum samskiptum, tíma sem er ekki skipulagður þar sem börnum jafnvel leiðist.

Í staðinn er börnum boðið upp á:

  • Foreldra sem eru uppteknir í símanum
  • Foreldra sem láta margt yfir sig ganga og leyfa börnunum að stjórna heiminum
  • Ónægan svefn og ójafnvægi í mataræði
  • Kyrrsetu og inniveru
  • Stanslausa örvun, tæknilega barnapíu og lítið um dauðan tíma til að njóta.

Getur einhver ímyndað sér að hægt sé að ala upp heilbrigða kynslóð í þessu óheilbrigða umhverfi? Auðvitað ekki! Það eru ekki til neinar flýtileiðir þegar kemur að uppeldi barna og við getum ekki platað mannlegt eðli. Tilfinninleg vellíðan barna er sett í hættu með ójafnvægi í æsku.

Hvernig getum við lagað þetta?

Ef við viljum að börnin okkar alist upp sem hamingjusamir og heilbrigðir einstaklingar þurfum við að fara vakna og fara aftur í grunnatriðin. Það er ennþá möguleiki og hefur Victoria orðið vitni að mjög jákvæðum breytingum aðeins með því að fara eftir þessum ráðleggingum:

1. Settu tökmörk og mundu að þú ert foreldri barnsins, ekki vinur. Bjóddu barninu upp á jafnvægi uppfullt af því sem barnið ÞARF en ekki það sem það VILL. Ekki vera hrædd við að segja nei við barnið ef það sem barnið vill er ekki það sem það þarf.
Bjóddu upp á næringaríkan mat og takmarkaðu snarlið og nammið.
Njótið klukkutíma á dag á grænu svæði eins og að hjóla, ganga, leika, veiða, horfa á fugla o.s.frv.
Hafið fjölskyldustund við matarborðið á kvöldin, síma og sjónvarpslaus.
Spilið eitt spil saman daglega.
Láttu barnið taka þátt í einu húsverki á dag t.d brjóta saman, taka til, hengja upp föt, taka uppúr pokum, elda, leggja á borð o.s.frv.
Hafðu barnið í svefnrútínu til að tryggja góðan svefn í tæknifrjálsu herbergi.

2.Kenndu ábyrgð og sjálfstæði. Ekki ofvernda barnið frá öllum litlum atvikum.
Ekki pakka ofan í bakpokan fyrir barnið, ekki halda á pokanum, ekki fara með nestið sem það gleymdi í skólann og ekki taka utan af banana fyrir 5. ára barn. Kenndu barninu, í stað þess að gera allt fyrir það.

3.Ekki mata barnið þitt stanslaust að skemmtun og kenndu barninu að leiðast því þá vaknar sköpunin.
Ekki halda að þú þurfir að vera skemmtanastjóri fyrir barnið þitt.
Leyfðu barninu að leiðast – ekki alltaf henda símanum í barnið.
Forðastu að nota síma/sjónvarp þegar það er matur, í bílnum, veitingastöðum o.s.frv.
Hjálpaðu þeim að búa til „að leiðast sjúkrakassa“ með hugmyndum að hlutum til að gera þegar „mér leiðist“ tíminn kemur.

4. Vertu til staðar fyrir barnið þitt tilfinningalega
Slökktu á símanum þínum þar til barnið er sofnað til að forðast truflun frá símanum
Kenndu barninu þínu að tjá og stjórna tilfinningunum sínum.
Kenndu samúð, að deila, kveðja, borðsiði, samskiptahæfni
Reyndu að tengjast barninu þínu tilfiningum, brostu, knúsaðu, kítlaðu, dansaðu, hoppaðu og lestu með barninu þínu.

Enginn er fullkomin og ég held að allir geti tekið eitthvað sem hér er sagt til sín og gert betur. Ég ætla allavega að reyna það sem ég get til tileinka mér þessa hluti í mínu uppeldi þó svo að ég viti að það tekst auðvitað ekkert alltaf en að hafa þessa punkta bakvið eyrað getur aukið líkurnar!

Hægt er að fylgjast með Snædísi á Instagram undir notandanafninu: Snaedisbergmann

Færslan er skrifuð af Snædísi Bergmann og birtist upphaflega á Lady.is 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum
Hartman í Val