Nú eru liðin þrjátíu ár frá því að keppnin um ljótasta hund heims hóf göngu sína. Keppnin hefur verið haldin árlega og var hún haldin hátíðrlega á laugardaginn síðasta í San Francisco Bay í Bandaríkjunum.
Samkvæmt Bored panda sigraði hin níu ára gamla Zsa Zsa keppnina eftir harða samkeppni. Zsa Zsa er af tegundinni English Bulldog.
Fjölskylda Zsa Zsa ættleiddi hana þegar hún var komin á fullorðinsár og segjast þau elska hana eins og hún er, með alla sína galla og skemmtilegan persónuleika.