Þegar Bella gekk á svið með ballett hópnum sínum á árlegri sýningu félagsins fékk hún sviðsskrekk og fór að hágráta fyrir framan allan salinn.
Danskennarinn hennar reyndi að róa hana fyrir sýninguna en ekki gekk það nógu vel. Hópurinn byrjaði að dansa en Bella fylgdi ekki með. Það var ekki fyrr en pabbi hennar gekk upp á svið til hennar, tók í hönd hennar og byrjaði að dansa með sem Bella róaðist niður og tók þátt í sýningunni.
Þetta myndband er mögulega eitt það krúttlegasta sem þú munt sjá í dag. Stundum þurfum við bara smá hvatningu í lífið til þess að blómstra.