Reglulegur liður um áhugaverða og skemmtilega „instagrammara“ hér á Bleikt heldur áfram. Síðast kynntum við lesendum fyrir Ernu Kristínu og Maríu Gomez.
Þessa vikuna langar okkur að kynna ykkur fyrir þeim Ásu Steinarsdóttur og Vilhelm Þór Neto.
Ása Steinarsdóttir:
Ása Steinarsdóttir er ljósmyndari og mikill heimshornaflakkari. Þessi unga og flotta stúlka hefur ferðast nánast út um allan heim og deilir ótrúlega fallegum myndum af ferðalögum sínum.
Hægt er að fylgjast með Ásu á Instagram undir notandanafninu: asasteinars
Vilhelm Þór Neto:
Vilhelm Þór er eldhress og bráðskemmtilegur leikari. Hann hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum sínum og er ávallt stutt í létta strengi hjá þessum hæfileikaríka dreng.
Hægt er að fylgjast með Neto á Instagram undir notandanafninu: vilhelmneto