Aríönu hefur alltaf fundist ótrúlega skemmtilegt að fá að leira og að hjálpa okkur í eldhúsinu. Ég fann þessa uppskrift af leir sem er fullkomin fyrir okkur fjölskylduna.
Núna getur Aríana búið leirinn sinn til sjálf.
Innihald:
150gr (1 bolli) hveiti
115gr (1/2 bolli) salt
2 tsk cream of tartar/vínsteinslyftiduft
2 msk ólífuolía
180ml (3/4 bolli) vatn
50ml (2 og 1/2 tsk) sjampó með lykt
Matarlitur
Aðferð:
Notið miðlungs stærð af potti, hrærið saman hveiti, salt og cream of tartar. Bætið svo við vatni, olíu og sjampó.
Bætið við matarlit að eigin vali.
Setjið á miðlungs háan hita, best er að nota trésleif, hrærið þar til deigið myndar „bolta“
Setjið á hreint yfirborð og leyfið leirnum að kólna í nokkrar mínútur. Hnoðið þar til deigið er mjúkt. Geymið í lokuðu íláti í kæli.
Hægt er að fylgjast með Heiðrúnu á Snapchat undir notandanafninu: heibbaleibba
Uppskriftin birtist upphaflega á Mæður.com