Sara Margrét hafði verið slöpp í tvær vikur þegar hún ákvað að fara heim úr vinnunni í hádeginu í gær. Á leiðinni heim var hún með samviskubit yfir því að þurfa að fara úr vinnunni en þegar heim var komið beið hennar hrikalegt atvik sem lét samviskubitið hverfa strax.
„Á leiðinni heim var ég með alveg svakalega mikinn móral yfir þessum aumingjaskap í mér en þegar ég kom heim beið mín eitthvað sem lét mig sko ekki sjá eftir því að hafa farið fyrr úr vinnunni,“ segir Sara Margrét á síðunni Hundasamfélagið á Facebook.
„Hann Loki minn var búinn að stúta nýja bælinu sínu sem ég keypti í Rúmfatalagernum fyrir viku síðan. Hann hafði flækt aðra afturlöppina í tætlunum og sneri svo kyrfilega upp á að blóðflæðið niður í fót hafði stoppað.“
Sara brást hratt við og sótti skæri til þess að klippa Loka lausan.
„Það var ekki auðvelt og hann grét og grét í hvert skipti sem ég snerti hann. Þetta tók svo á að þegar hann var loksins laus þá sat ég á gólfinu og hágrét líka. Ég komst ekki yfir tilhugsunina um hvað hefði orðið af honum ef ég hefði ekki komið snemma heim úr vinnunni.“
Þegar Söru tókst að losa Loka fór hún með hann upp á dýraspítala þar sem hann fékk verkjalyf og bólgueyðandi.
„Núna sefur hann eins og rotaður upp í sófa og vill hvorki mat né vatn. Ég verð að fylgjast vel með honum því að þó það sé ekki slit í hásininni þá er hætta á að það komi drep í löppina þar sem við vitum ekki hversu lengi blóðflæðið var stopp.“
Sara ákvað að deila þessari hörmulegu reynslu sinni í þeirri von um að vara aðra við því að hafa ekki eitthvað í búri hundana á daginn sem þeir gætu tætt og flækt sig í.