„Á hverjum degi sjáum við það sem samfélagið flokkar undir „hinn fullkomna líkama.“ Við sjáum það svo oft að við erum hætt að taka eftir því. En djúpt í undirmeðvitundinni hefur það áhrif á okkur.
Eða hvað?“
Svona hefst pistill Dýrleifar Sjafnar Andradóttur um fegurð úr tímaritinu Gáran sem var gefið út á dögunum af félagsmiðstöðinni Frosta og er það unnið af nemendum í Hagaskóla.
Hugmyndin að blaðinu kviknaði eftir umræður innan félagsmiðstöðvarinnar um líkamsvirðingu og áhrif samfélagsmiðla. Þá var ákveðið að slá til og útbúa tímarit og fékk félagsmiðstöðin í kjölfarið þróunarstyrk frá Reykjavíkurborg. Í blaðinu er grannt fjallað um mikilvæg málefni á borð við sjálfs- og líkamsvirðingu, sjálfsást, samfélagsmiðla, félagsleg norm í mismunandi heimshlutum og átröskun svo dæmi séu tekin. Þess má einnig geta að blaðið er stútfullt af flottum ljósmyndum og teikningum frá aðstandendum.
Kristín Björk Smáradóttir, starfsmaður hjá félagsmiðstöðinni, hafði umsjón með útgáfu blaðsins, Dýrleif Sjöfn ritstýrði og stóðu allt að tólf aðrir nemendur skólans að tímaritinu með sínum framlögum.
Gáruna má nálgast hér og er svo sannarlega mælt með þessum lestri.