Nú er sumarið með tilheyrandi fríi og ferðalögum loks að skella á. Skólaslitin liðin og krakkarnir komnir í sumarfrí. Undirbúningur fyrir ferðalag um landið að ná hámarki og spennan eykst með hverjum deginum.
Það sem eftir er af júní notum við i hin ýmsu námskeið og leggjum lokahönd á undirbúning fyrir fyrirhugaða ferð.
Í fyrra fórum við í okkar fyrstu ævintýraferð um landið og ákváðum að fara í vesturátt. Það var ekki margt sem var ákveðið, en efst á þeim litla lista sem hafði verið gerður var að gista í bílnum, veiða og borða mikið af ís. Við listann bættist svo meðal annars útreiðartúr um fallegan dal og virkilega skemmtileg sigling um eyjur og hólma við Stykkishólm. Annars létum við ferðina svolítið ráðast af veðrinu og því sem hægt var að gera á hverjum áfangastað.
Ferðin í ár er hugsuð á sama hátt og ætlum við að leggja í hann í byrjun júlí og fara norður. Þar ætlum við að vera í 5-7 daga. Við ætlum meðal annars að fara hvalaskoðun og skoða okkur vel um fyrir norðan enda margar náttúruperlur þar að sjá.
Einnig ætlum við að kíkja á gamlar æskuslóðir mömmunnar en ég eyddi miklum tíma fyrir norðan á sumrin þegar ég var barn. Þegar við höfum skoðað okkur um fyrir norðan er leiðinni næst heitið austur. Þar ætlum við að skoða fjársjóði fjörunnar en austan megin við landið eru fallegar fjörur þar sem gaman er að skoða sig um og týna fallega steina.
Síðustu dagana ætlum við svo að njóta á sunnanverðu landinu. Kíkja í dagsferð til Vestmannaeyja, rölta um landið, skoða fossa og enn fleiri fjörur. Við búum á landi sem er svo ótrúlega fjölbreytt og fallegt og býður upp á endalausa möguleika að skoða og upplifa. Það er ekkert dýrmætar í lífinu en að búa til góðar minningar með þeim sem við elskum. Vonandi gerum við það sem flest í sumar sem og alltaf.
Gleðilegt og gott sumar, HeiðaÓsk.