Ár hvert safnast saman hópur kvenna á Magheramore-strönd í Wicklow-sýslu á Írlandi þar sem fram fer nektarsund til styrktar krabbameinssjúkum. Samkoman hefur vaxið hverju sinni en þetta árið tók hún gríðarlegan kipp og kom sér í sögubækur Guinness. Mættu alls 2,505 naktar konur á ströndina til að spóka sig á Evuklæðunum fyrir góðan málstað. Var hiti sjávar þar um 12 gráður á Celsíus.
Heimsmetið Guinness í nektarsundi var áður í eigu skipuleggjenda sem stóðu að sambærilegri athöfn í Perth í Vestur-Ástralíu árið 2015 þar sem mættu í kringum 786 manns af báðum kynjum.
Þetta er sjötta árið í röð þar sem írsku samtökin Strip & Dip standa að viðburðinum á Írlandi. Stofnandi hópsins, Dee Featherstone, barðist sjálf við brjóstakrabbamein og ákvað að efla til vitundarvakningar árið 2012 með nektarsundi. Lét hún einnig verða af þeirri hugmynd til að sigrast á óöryggi sínu hvað líkama sinn varðar eða örin sem hún hlaut á honum eftir krabbameinið. Margar hverjar konur sem mæta á ströndina hafa sjálfar glímt eða glíma við sjúdóminn af einhverri gráðu.
Í ár tókst að safna saman yfir 275 þúsund evrum, eða rúmlega 34 milljónum íslenskra króna, og fer ágóðinn til krabbameinssamtakana Aoibheann’s Pink Tie.