fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Ester lést þremur dögum eftir brúðkaup sitt: „Í þessu myndbandi sést hvað lífið getur verið ósanngjarnt en fallegt á sama tíma“

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 4. maí 2018 10:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellefu mánuðir eru liðnir síðan Ester Eva Gunnarsdóttir lést langt fyrir aldur fram eftir að hafa greinst með magakrabbamein á fjórða stigi. Einungis þremur mánuðum eftir sviplegt andlát Esterar, lést Gunnar Gunnarsson faðir hennar úr hjartaáfalli. Óhætt er að segja að ástvinir feðginanna hafi setið eftir í sárum eftir þessi stóru áföll. Á dögunum birti Sara Dís, dóttir Gunnars og systir Esterar, hjartnæmt myndband af brúðkaupi systur sinnar skömmu fyrir andlát hennar. Þar átti hún yndislega stund með föður sínum, systur og öðrum nánum aðstandendum. Í samtali við DV segist hún reyna að líta lífið jákvæðum augum en hún hafi verið lengi að átta sig á fráfalli feðginanna.

Hélt að pabbi sinn væri í vinnunni

„Ég var svolítið lengi að átta mig á þessu fyrst og er eiginlega bara nýbúin að því. Það er næstum því ár síðan Ester dó og hálft ár síðan pabbi kvaddi. Í tilfelli Esterar þá var smá aðdragandi að andláti hennar.  Hún veiktist í janúar og dó síðan í júní. Við pabbi fórum út til hennar í maí og vorum alveg hjá henni síðustu þrjár vikurnar. Það var enginn aðdragandi í tilfelli pabba. Hann fékk skyndilegt hjartaáfall og dó strax. Ég áttaði mig einhvern veginn ekki alveg á því, ég hélt bara að hann væri í vinnunni.“

Sara með föður sínum.

Sara segist hafa átt um sárt að binda í upphafi en að hún hafi fengið mikla hjálp frá fjölskyldu og ættingjum til þess að komast yfir mestu sorgina.

„Ég er búin að tala við prest sem sérhæfir sig í sorgarferli fyrir ungt fólk og hann er búinn að hjálpa mér mjög mikið. Ester og pabbi voru bæði ótrúlega jákvæð og horfðu alltaf bjartsýnum augum fram á veginn. Ég reyni því að tileinka mér þessa jákvæðni þeirra. Það má segja að ég sé að reyna  að gera það í minningu þeirra af því að ég veit að ef ég geri það, þá eru þau ánægð. Ég held að þetta geri manni gott því enginn veit hvað gerist á morgun.“

Á afmælisdegi föður Söru þann 2. maí síðastliðinn ákvað Sara að setja inn hjartnæmt myndband úr brúðkaupi Esterar sem haldið var á spítalanum einungis þremur dögum áður en hún lést. Þá var ljóst í hvað stefndi en Ester og barnsfaðir hennar, Spencer, ákváðu að gifta sig áður en hinsta stund hennar rann upp.

„Það voru allir á deildinni sem hjálpuðu okkur að gera brúðkaupið eins flott og eftirminnilegt og hægt var. Starfsfólkið reddaði köku og kampavíni og þau tóku allt út úr einni stofunni til þess að setja upp borð og myndir af brúðhjónunum. Við vissum ekkert af því að þau væru að gera þetta til þess að hjálpa þeim og þau komu okkur á óvart. Þetta var allt svo ótrúlega fallegt. Það þekktu hana líka allir á deildinni, hún var alltaf svo góð við alla og þetta var virkilega erfitt fyrir alla sem voru viðstaddir.“

Getur ekki beðið eftir að hitta þau aftur

Við að rifja upp minningarnar segist Sara vilja óska þess að hún gæti varið afmælisdeginum með föður sínum en hún huggi sig við þá tilhugsun að systir hennar sjái um að gera daginn góðan fyrir hann.

„Hver dagur án þeirra er svo tómlegur og ég get ekki beðið eftir að hitta þau aftur hinum megin. Ég hef ekki treyst mér í það að deila þessu persónulega myndbandi með almenningi en í tilefni dagsins ákvað ég að sýna það af því að þessi dagur var svo merkilegur, bæði fyrir pabba og fyrir systur mína. Í þessu myndbandi sést hvað lífið getur verið ósanngjarnt en fallegt á sama tíma og ég vona að það láti alla hugsa hversu dýrmætt lífið er.“

 

Ester skildi eftir sig eiginmanninn Spencer og synina tvo, Óðin Alexander og Viktor Þór, sem voru einungis þriggja ára og níu mánaða þegar móðir þeirra lést.

Stofnaður var styrktarreikningur í nafni föðursystur Esterar en hún heitir Svanhildur Gunnarsdóttir. Reikningurinn verður notaður sem skólastyrkur fyrir drengina hennar þegar þeir verða eldri. Kennitala: 271152-5749 og reikningur: 0142-05-570531

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“