Ungt par var gómað í ástaratlotum á lestarstöð í Siebenhirten í Austurríki og náðist atvikið á upptöku. Myndbrotið fór hratt á flug um veraldarvefinn og kom þetta vitnum hressilega á óvart enda yfirleitt góður straumur fólks á stöðinni.
Skömmu eftir birtingu var myndbandið fjarlægt af samfélagsmiðlinum eftir að ummæli bárust að efnið þætti afar ósmekklegt, en þarna brá bersýnilega fyrir par í stöðu sem skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.
„Það á enginn að horfa upp á svona lagað,“ sagði einn ummælandi við myndbandið áður en það var tekið niður.
Ekki var þó öllum misboðið og voru nokkur vitni sem sögðu að athöfnin væri fínasta tilbreyting frá hefðbundnum glæpum sem reglulega glittir í á umræddri lestarstöð.