Manu er heimshornaflakkari og hefur hann margoft heimsótt Ísland, sem heillaði hann í hans fyrstu heimsókn árið 2015. Hann segist vera fjarskyldur ættingi okkar, víkinganna í norðri, sjálfur maóríinn, víkingurinn úr suðri. Manu er mikill áhugamaður um sögu og einnig mikill mannvinur og dýravinur eins og kom berlega í ljós í heimsókn hans til Helsinki í Finnlandi fyrr í vikunni.
Var hann á gangi þar meðfram bryggju þegar hann veitti því athygli að fugl átti í vandræðum í vatninu. Gerði Manu sér lítið fyrir, afklæddist og stökk út í og bjargaði fuglinum. Það kaldhæðnislega var að fuglinn var með merki vafin um hálsinn, þar sem vakin var athygli á fuglum sem eru í útrýmingarhættu. Þessi fugl bjargaðist þó, þökk sé hetjudáð Manu og flaug fuglinn í faðm maka síns, sem gargað hafði hástöfum á meðan á björguninni stóð.