fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Logi heldur framhjá með karlmönnum

Ragnheiður Eiríksdóttir
Laugardaginn 26. maí 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Logi minn, karlagirndin er ekki málið!

Hæ Ragga

Það tók langan tíma að safna kjarki til að skrifa þetta bréf til þín. Erindið varðar mál sem fyllir mig skömm og kvíða. Ég er kannski tvíkynhneigður en get ekki hugsað mér að horfast í augu við það. Síðustu fimmtán ár hef ég leyft mér af og til að hitta karlmenn og stunda með þeim kynlíf. Þegar það er afstaðið líður mér hræðilega illa – ég fer heim, reyni að haga mér eðlilega og gleyma þangað til þörfin kviknar aftur. Ég er í sambúð með konu sem hefur varað í 20 ár. Hún veit ekkert. Ragga mér líður ógeðslega illa yfir þessu – hvað á ég að gera?

Með kveðju, Logi

Hæ Logi

Málið snýst um að þú ert búinn að vera haldandi framhjá konunni þinni í einn og hálfan áratug. Þess vegna líður þér illa. Kynhneigðin kemur málinu ekki við. Jú, ókei, það er örugglega glatað að vera heltekinn af skömm yfir kynhneigð öll þessi ár – en hættu fyrst að halda framhjá eða endaðu sambandið með konunni svo þú getir stungið getnaðarlim þínum á þá staði sem þig langar. Margir lifa þannig lífi! Meira að segja innan sambanda, því opin sambönd eru líka til!

Eitt að lokum – ég ræð þér frá því að hrynja á hnén og játa allar syndir þínar fyrir konunni – það kann sjaldnast góðri lukku að stýra. Skömmin er þín og úrvinnslan er þín, ekki dömpa þessu yfir á konuna.

Gangi þér vel, kæri vinur,

Ragga

 

Er Guðfinna of venjuleg í kynlífinu?

Young woman using laptop, raising eyebrows

Hæ Ragga

Ég fylgist mikið með umræðu um kynlíf og sambönd í samfélaginu, meðal annars með þínum skrifum. Mér finnst merkilegt og heillandi að uppgötva hvað fólk er að pæla og gera varðandi kynlíf, en á sama tíma hef ég orðið hugsi varðandi mitt eigið kynlíf. Ég er svo rosalega venjuleg. Ég er í sambandi, 49 ára gömul, stunda kynlíf að meðaltali tvisvar í viku án allra tækja, leikja eða hlutverka – í raun bara inni í rúmi og fíla það í botn. Sjálfsfróun stunda ég af og til, og ef ég kíki á klámefni er það yfirleitt kynlíf konu og karls í trúboðastellingu. Ég hef aldrei haldið framhjá, ekki maðurinn minn heldur (svo ég viti), og mig hefur aldrei langað í annan mann þessi 9 ár sem við höfum verið saman. Nú spyr ég – getur verið að ég sé of venjuleg? Er ég óvenjulega venjuleg? Er ég að missa af alls konar?

Bestu kveðjur, Guðfinna

Elsku venjulega Guðfinna

Mælikvarðinn á gott kynlíf er að viðkomandi fái þarfir sínar uppfylltar og upplifi ánægju. Mér sýnist á öllu að þú sért einmitt svo heppin að vera í þeirri stöðu. Kynlíf er svo magnað fyrirbæri. Öll (vel flest að minnsta kosti) höfum við grunnþörf fyrir kynlíf og nánd við aðrar manneskjur, en svo er fjölbreytnin í smekk, tjáningu og virkni hér um bil óendanleg. Samkvæmt tölfræði frá Kinsey-kynlífsrannsóknastofnuninni frægu stunda aðeins 28% fólks yfir 45 ára kynlíf einu sinni í viku eða oftar – mörgum ætti því að finnast þú ansi virk og meiriháttar flippuð því þú horfir á klám af og til. Kinsey vitnar á heimasíðu stofnunarinnar í rannsókn frá 2006 þar sem aðeins 4% kvenna viðurkenna að hafa horft á klámefni síðasta mánuðinn. Í nýrri rannsóknum eru tölurnar hærri – en konur eru þó mun líklegri en karlar til að halda klámnotkun sinni leyndri.

Þannig að þín upplifun á því að vera voðalega venjuleg er algjörlega út frá sjálfri þér. Það er nákvæmlega ekkert að því að njóta kynlífs í þeim mæli og á þann hátt sem þú segir frá í bréfinu. Ef þú hins vegar finnur fyrir forvitni eða löngun til að prófa eitthvað nýtt, hvet ég þig eindregið til að ræða það við manninn þinn og kanna hvort grundvöllur sé fyrir smá kynferðisflippi í sambandinu.

Bestu kveðjur,

Ragga

 

Kynlífsorðabankinn

Um nokkra hríð hefur ykkar einlæg safnað nýyrðum og orðskýringum sem tengjast kynlífi. Íslenska tungan er vissulega göfug og ljóma sveipuð, en á sama tíma ansi fátæk þegar kemur að orðum og hugtökum um kynlíf, kynhneigð sambönd og svoleiðis nokkuð.

Handrið – sjálfsfróun, óháð kyni.

Að fara suður – að veita munngælur.

Að fara afsíðis – að stunda sjálfsfróun.

Tindermyndablinda – þegar einstaklingur skráir sig á Tinder og birtir óviðeigandi myndir – er ekki dómbær á eigin myndir.

Bróner – holdris karlmanns af völdum karlkyns vinar.

Brómantík (e. bromance) – djúp vinátta eða ást milli tveggja gagnkynhneigðra karlmanna.

Kynlífsþynnka – tómleikatilfinning eftir ríkulega ástundun kynlífs. Oft hægt að koma í veg fyrir með samtölum og knúsi.

Skeggblinda – þegar skeggsækni einstaklings er á það háu stigi að annað í fari þess skeggjaða, svo sem persónuleiki, hættir að skipta máli.

Bjullur – brjóst á karlmanni. Hjá sumum karlmönnum safnast fita undir geirvörtur á bringunni svo úr verða brjóst. Fræðiheitið er „gynecomastia“. Stundum er orsökin truflun á hormónastarfsemi en í öðrum tilfellum er fitudreifingu líkamans um að kenna.

Rimma – sögnin að rimma vísar til þess þegar tunga er notuð í þeim tilgangi að örva endaþarmsop.

Tvípoka – þegar tveir smokkar eru settir á lim fyrir samfarir. Þess ber að geta að framkvæmdin er ekki talin fela í sér aukna vörn gegn þungun eða smiti sjúkdóma.

Loðtaco – píka. Tveir barmar, safaríkt innihald – og hár!

Kvensmokkur – sérstakur smokkur úr pólýúretan-plastefni sem notaður er til að klæða leggöng fyrir samfarir. Á báðum endum er stinnur hringur sem heldur smokknum á sínum stað.

Reðurteppa (e. cockblock) – prýðileg íslenskun á þessari sögn. Hér er átt við þegar einstaklingur kemur í veg fyrir möguleika á kynlífi þar sem karlmaður tekur þátt.

Skonsa – nýyrði yfir kynfæri kvenna. Komst fyrst í hámæli eftir fyrirsögn í frétt Morgunblaðsins.

Slölli – sleikur eða tungukoss.

Dráttarvél – titrari, kynlífsleikfang.

Búðingur – vottur af holdrisi hjá karlmanni.

Gæluvarðhald – kynlífsleikur þar sem aðili er bundinn og þiggur gælur í því ástandi.

Líkþrá (e. necrophilia) – þráin eftir því að hafa samræði við lík.

Samlóka – vísar til kvenna sem hafa átt sömu ástmennina, samanber kviðmágar sem lengi hefur verið notað um karlmenn sem hafa sængað með sömu konunni.

Argur – að vera argur þýddi áður fyrr að vera samkynhneigður karlmaður.

Handavinna  – að nota hendurnar til örvunar kynfæra.

Mótorbátur – þegar andlit er sett milli brjósta, blásið og höfuð hrist á sama tíma.

Þjókall (e. booty call) – símtal, gjarnan seint um kvöld, þar sem boðið er til kynlífsstundar.

B-blettur – vísar til blöðruhálskirtils karlmanna. Hægt er að örva blöðruhálskirtilinn gegnum endaþarm og magna þannig upp tilfinningu við fullnægingu.

Kynsæl/l – einhver sem stundar mikið kynlíf og nýtur kynferðislegra vinsælda.

Hnefaleikar (e. fisting) – það athæfi þegar hnefi er settur inn í líkamsop til kynferðislegrar örvunar.

Andlitsseta (e. face sitting) – þegar kona situr klofvega á andliti annarrar manneskju til dæmis þannig að snípur nemi við nef og leggöng við munn.

Saflát (e. female ejaculation/squirting) – losun á vökva við fullnægingu hjá konu. Vökvinn kemur úr kirtilvef sem umlykur þvagrásina og er svipaður að samsetningu og vökvinn sem blöðruhálskirtill karlmanna framleiðir.

Áhugasömum um málþróun, nýyrði og skilgreiningar má benda á vefinn Kynsegin frá ö til a – www.otila.is

Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni, Hamraborg 11. raggaeiriks@gmail.com
www.raggaeiriks.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk
433
Fyrir 14 klukkutímum

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.