fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Hvað segir eiginkonan? Eyfi er sannur vinur og besti vinur minn

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 26. maí 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn og lagahöfundurinn Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi eins og við þekkjum hans best, er einn af okkar fremstu tónlistarmönnum og kemur reglulega fram ýmist með öðrum eða einn með kassagítarinn, síðast fyrir viku síðan þegar hann var leyniatriði á undan hljómsveitinni Foreigner á stórtónleikum þeirra í Laugardalshöll.

DV heyrði í eiginkonu Eyfa, Söndru Lárusdóttur eiganda snyrtistofunnar Heilsa og útlit, og spurði: Hvað segir eiginkonan um mann sinn?

„Eyfi er sennilega sá allra fyndnasti sem ég veit um, hann nær að láta alla missa það og grenja úr sér augun, og mjög minnugur, það er hægt að spyrja hann að öllu og hann veit svarið. Hann er sannur vinur vina sinna og besti vinur minn. Við eigum 20 ára sambandsafmæli og 17 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári og hann segir alla daga við mig hvað hann elskar mig, það er örugglega það sætasta sem ég veit um. Hann er yngstur af sex systkinum og hann elskar að bjóða þeim í mat á afmælisdeginum sínum sem lýsir því best hvað hann er góður drengur sem elskar sitt fólk. Ljúfur drengur, mjög vel gefinn, örlátur, algjörlega fróður um allt, ekki bara músik og kvikmyndir. Fær alla til að missa sig úr hlátri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“