Það getur verið mikil vinna að ráðast í framkvæmdir á gömlum húsum, sérstaklega þeim sem ekki voru byggð upphaflega sem íbúðarhúsnæði. Það stöðvaði þó ekki verktaka nokkurn sem réðist í það verk að breyta gamalli hlöðu í lúxus heimili.
Hlaðan er staðsett í Norfolk í Bretlandi og varð það Rob Lond-Caulk sem ákvað að taka bygginguna algjörlega í gegn og breyta henni í risa stórt lúxus heimili samkvæmt Bored Panda.
Það eru líklega ekki margir sem myndu segja nei við því að flytja inn í þessa íbúð.