Bandaríska leikkonan Sarah Poulson segir að hún gefi lítið fyrir þá sem gagnrýna samband hennar og leikkonunnar Holland Taylor. Sarah er fædd árið 1974 og er 43 ára en Holland er fædd árið 1943 og er 75 ára.
Í viðtali við Modern Luxury segir Sarah að samband þeirra sé mjög sterkt þó að þær báðar hafi mátt þola óvægnar gagnrýnisraddir.
Sarah er mörgum að góðu kunn en hún hefur farið með hlutverk í þáttum á borð við American Horror Story og American Crime Story og í myndum á borð við 12 Yers a Slave, The Post og Carol en hún fer einnig með veigamikið hlutverk í Ocean‘s 8 sem verður frumsýnd í sumar. Holland hefur leikið í vinsælum þáttum á borð við Two and a Half Men og The L Word svo dæmi séu tekin.
Sarah og Holland hafa verið elskendur frá árinu 2015 og segir Sarah í viðtalinu að henni sé í raun alveg sama um gagnrýnisraddir. „Ef einhver vill eyða tíma sínum í að hugsa um hvað ég sé skrýtin fyrir að vilja vera með dásamlegustu manneskju á þessari plánetu, þá er það hans vandamál.“
Sarah segir að þegar hún opinberaði sambandið með Holland hafi einhverjir úr bransanum fullyrt að það gæti skemmt fyrir henni að vera með eldri konu eins og það var orðað. Staðreyndin er þó önnur og hefur Sarah líklega aldrei haft meira að gera en einmitt nú.