Ég hef haft það í vana að byrja morgnana á hollum morgunmat. Að byrja daginn þannig lofar alltaf góðu að mínu mati. Maður fær minni löngun í sætindi yfir daginn og hefur næga orku. Ég fer ekki út úr húsi nema að vera búin að fá mér að borða, ef ég veit að ég hef ekki nægan tíma þá er alltaf gott að vera búin að undirbúa hann kvöldið áður.
Langaði að deila með ykkur uppskriftum sem ég held mikið upp á.
Þessi klassíski leti hafragrautur sem ég geri. Mér finnst þessi alveg frábær. Ég græja hann kvöldið áður og er hann síðan tilbúin um leið og ég vakna.
45 gr hafrar
2 msk chia fræ
1 msk kanill
1 góð lúka vínber/epli – hvaða ávöxt sem þér þykir góður
1-2 dl möndlumjólk
Aðferð:
Setjið hafra, chiafræ og kanil í box. Bætið síðan möndlumjólk við og síðan vínber/epli. Hrærið öllu saman og inní ísskáp yfir nótt.
2 dl möndlumjólk
2 msk chiafræ
1 tsk kanill
Hálf lúka möndlur
Hálf lúka jarðarber
Aðferð:
Setjið chiafræ í möndlumjólk og smá af kanil. Best er að leyfa chiafræjunum að ligga í ca 15 mín (lang best yfir nótt). Hellið í skál ásamt nokkrum möndlum og jarðarberjum. Ef ykkur finnst grauturinn vera of þunnur þá er gott að bæta við 1 matskeið af grísku jógúrt.
Langbest er að eiga alltaf til viku skammt af tilbúnum chiafræjum. 4 – 5 msk chiafræ og 2 dl vatn. Setja síðan í krukku og geyma í ca viku inni í ísskáp.
1-2dl kókosmjólk (best að nota rjómann sem er efst í dósinni)
1 dl kókosvatn
2 msk chiafræ
2 tsk sweet like syrup/ stevia dropar
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
Þegar þið opnið kókosmjólk í dós þá er hún oft þykkari efst. Það er svokallaður rjóminn úr mjólkinni. Í þennan graut er best að nota hann til þess að hafa hann meira „creamy“. Setjið kókosmjólkina og kókosvatnið í blandara. Bætið síðan við chiafræ sem hafa legið í bleyti í annaðhvort 15 mín eða 24 tíma. Bætið við sætu og ávöxtum eftir lyst.
1 avókadó
2 dl kókosmjólk
1 tsk sweet like syrup / 1-3 dropar af steviu
Aðferð:
Setjið allt í blandara í u.þ.b. mínútu. Ef búðingurinn er of þykkur bætið þá meiri kókosmjólk.
Létt ab mjólk með ferskum ávöxtum eða múslí
Verði ykkur að góðu og eigið góðan dag 🙂
Uppskriftirnar birtust upphaflega á Lady.is