Þriggja barna móðir ákvað að krydda upp fjölskyldumyndirnar með ótrúlega skemmtilegum hætti. Kate Weiland vildi geta litið til baka og hlegið þegar fjölskyldan skoðaði myndaalbúmið og ákvað hún því að breyta hinum hefðbundnu fjölskyldumyndum í eitthvað allt annað.
„Hugmyndirnar af búningum eru endalausar og ég elska að skapa og kynna nýjar hugmyndir,“ segir Kate í viðtali við Bored Panda.
„Ég átta mig á því að einhverjum gæti fundist myndirnar ósmekklegar en maður á ekki að láta aðra hafa áhrif á sig.“