fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Ólöf Jakobsdóttir: „Kannski vegna þess hvað ég er lærð hef ég þurft að vera smá karlremba“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 22. maí 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólöf Jakobsdóttir er 35 ára og í draumastarfinu, hún er yfirmatreiðslumeistari, ein af fáum konum í karlaheimi, þó konunum í stéttinni fari fjölgandi.

Ólöf er yfirmatreiðslumeistari á Horninu og með alþjóðleg dómararéttindi. Þrátt fyrir menntun sína, reynslu og áhuga hefur henni verið ýtt til hliðar, meðvitað eða ómeðvitað, fyrir karlmenn í faginu, bæði á námstímanum og síðar. Sem dæmi má nefna að þegar hún var fengin til að dæma keppni fyrir rúmu ári, tók hún frí úr sinni vinnu og dæmdi hálfan dag, eða þar til karlmaður mætti og „leysti“ hana af. Daginn eftir var hann síðan mættur allan daginn og Ólöfu því ekki gefinn kostur á að dæma neitt þann dag. Sárnaði henni síðan að lesa í umfjöllun um keppnina eftir á að gætt hefði verið að kynjajafnrétti við dómgæsluna.

„Kom mér óhugnanlega á óvart hvað ég hafði látið yfir mig ganga“

Í vor ákvað hún að setjast niður og skrifa um reynslu sína sem kona í þessum heimi og þá aðallega í kokkaheiminum, hún byrjaði á byrjuninni þegar hún var nemi og endaði á deginum í dag, eins og staðan er í dag.

„Það kom mér óhugnanlega á óvart hvað ég hafði látið yfir mig ganga og hvað ég hafði horft á aðrar konur ganga í gegnum og aðallega kom mér á óvart hvað ég hafði ekkert hugsað þetta í kynbundnu samhengi, og pældi í raun ekkert í þessu. Þetta var einhvernveginn bara eðlilegt,“ segir Ólöf í samtali við DV.

Flutti ræðu um reynslu sína á aðalfundi Klúbbs matreiðslumeistara

„Þegar aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara var svo haldinn á Siglufirði í byrjun apríl síðastliðnum fann ég að ég þurfti að koma þessu frá mér. Það þarf einhver að standa upp og segja þetta og mín starfsstétt þarf að vera með í byltingunni. Ég hélt ræðu og sagði frá þessu öllu í   smáatriðum og hlaut standandi lófaklapp, allir stóðu upp og klöppuðu fyrir mér, flestir tóku utan um mig, konur og menn komu til mín og sögðu: „Vá hvað ég hef margar svona sögur að segja,“ en flestir sögðu bara einfaldlega „TAKK.“

Hér er brot úr ræðu Ólafar, sem hún gaf DV góðfúslega leyfi til að birta:

Góðan dag kæru félagar.

Þegar #metoo byltinginn fór af stað var ég ein af þeim sem þoldi ekki Hildi Lilliendahl, hún fór rosalega í taugarnar á mér með þessu rifrildi, dónaskap og rembingi endalaust.

Mér fannst konur væla of mikið og ekki standa nógu vel með sjálfum sér, mér fannst þær kenna karlmönnum allt of mikið um hvernig fyrir þeim var komið og mér fannst þær þyrftu bara að vera duglegri að segja nei eða bara segja hvað þær vildu og vera sterkari.

Já ég viðurkenni það að ég var ein af þessum ógeðum eins og Sóli Hólm kallar þetta sem skildi ekki allt þetta væl.

Kannski vegna þess hvað ég er lærð hef ég þurft að vera smá karlremba, vera hörð og karlmannleg, skítug upp fyrir haus og rífa kjaft. Vera einhver sem getur allt, haldið á þungum kössum þegar ég var ófrísk, staðið langar vaktir og gert allt. Ekki leyft mér að líða illa vegna barnanna minna, má ekki sakna þeirra. Hlusta á mishuggulegar lýsingar á konum og samskiptum við konur og eitthvað sem áttu að vera brandarar en voru bara ógeðsleg kvenfyrirlitning. Fyrir utan það að hafa þurft að sætta mig við niðurlægjandi komment og kvenfyrirlitningu.

En ég er hér og ég er kona.

Ég á þrjú falleg börn og er heima með yngsta barnið í orlofi í dag. Vegna þess fæ ég spurningar eins og: „ferðu aftur að vinna“, verðurðu á sömu vöktum?, ertu ekki þreytt?, hvernig gengur?“

Það hefur þó enginn spurt manninn minn þessara spurninga. Þið karlmenn hafið örugglega aldrei verið spurðir að því hvernig þið farið að því að eiga börn og heimili OG vera útivinnandi, ég er hinsvegar spurð að því reglulega.

Það eru einmitt börnin mín sem hafa gert mig sterkari og viljugri til að deila þessu og vera hluti af því sem reynir að gera heiminn betri, því ég vil að börnin mín alist upp í heimi þar sem við öll skiptum máli, þar sem við öll erum jafn mikilvæg og þar sem enginn er betri en einhver annar og þau geti orðið hvað sem þau vilja.


Ólöf með yngsta barn sitt, Valgerði Jakobínu.

Ég er matreiðslukona, meira að segja matreiðslumeistari, og með stúdentspróf, 3 menntaskólagráður.
Elska fagið mitt og vinnuna mína.
Leiðin að sveinsprófinu var þó enginn dans á rósum. Ég fór erlendis á námstímanum til að sækja mér þekkingu á námstímanum. Ég var á einum stað látin sitja á mjólkurkassa fyrir utan veitingahúsið til að vera ekki fyrir og þau skipti sem ég fékk að elda var það staffamatur.

Svo það eina sem ég lærði á tæplega tveimur mánuðum af 14 tíma vöktum fimm daga vikunnar var að þrífa, elda staffamat (hakk og spaghetti og pönnukökur) ganga frá eftir matinn og þrífa að loknum degi, var meira að segja eina vaktina látin bíða inni í kæli að drepast úr kulda, sem var auðvitað bara einhver sjúkur brandari.

Samt var þetta margverðlaunaður Michelin staður rekinn af mest verðlaunaða kokki heims. Á sama tíma og ég var þarna var íslenskur strákur líka, kominn aðeins styttra en ég á samning en hann var inni alla daga, varð strax hluti af hópnum og tók þátt í öllum undirbúningi og öllum keyrslum.

Þetta er bara ein saga af einum stað, ég á þær alveg nokkrar í viðbót.

Ég stóð mína plikt í námi, skilaði mínu, var dugleg og reglusöm og heiðarleg. Svo fór ég í lokabekkinn í skólanum þar sem eingöngu karlmenn voru að kenna, í dag er í fyrsta skipti ein kona að kenna fagið sjálft. Einhverjir kvenkyns kennarar eru að kenna áfanga eins og næringafræði og annað, en ekki fagið sjálft (samkvæmt mínum heimildum).

Ég er líka meðlimur í skemmtilegum kúbbi, klúbbi sem hefur gert margt nauðsynlegt fyrir fagið okkar og samfélagið allt. Ég sit fundi þar sem „þeir“ tala saman um hvað „þeir“ eru og ætla að gera. Ég leiðrétti þetta á fundi um daginn og hálf skammaðist mín að gera það og þið fóruð bara að hlæja að mér. Ég heyrði meira að segja, „konur þurfa bara að vera duglegri að koma á fundi“ en þessi setning er AKKÚRAT upphafið af þessari byltingu, konur þurfa bara að vera duglegri, hafið þið ekki séð þetta á strætóum til dæmis? Merktir KÞBAVD.

Ég er með alþjóðleg dómararéttindi, sótti námskeið til að öðlast slík réttindi fyrir tveimur árum. Ég var beðin um að dæma tveggja daga keppni fyrir rúmu ári. Fékk frí frá vinnunni minni og mætti fersk og flott að dæma, sat með pabba (sem er alþjóðlegur dómari) heima daginn áður, fékk góð ráð frá honum og skoðaði dómarablöð sem hann átti og las yfir reglur og annað, undirbjó mig mjög vel. Dómararnir voru fjórir, 2 konur og 2 karlmenn.


Ólöf ásamt föður sínum, Jakobi Magnússyni.

Ég dæmdi hálfan fyrri daginn eða þangað til karlmaður kom og leysti mig af, og seinni daginn dæmdi ég ekkert, var bara í eftirlitsstörfum, frágangi, uppvaski og þjónustustörfum fyrir hina dómarana. Nokkrum dögum seinna þegar verið var að fjalla um þessa keppni í fjölmiðlum var klúbbnum hampað og sérstaklega talað vel um kynjajafnrétti í dómgæslu. Það er særandi að nafnið mitt hafi verið notað í þessum tilgangi.

Talandi um það þá er sorglegt að sjá að af 11 dómurum hafi engin kona verið að dæma þegar það var verið að dæma í matreiðslumanni ársins fyrir stuttu síðan.

En elsku vinir.

Það er enginn að segja að neitt sem gerðist fyrir mig hafi ekki verið tíðarandinn þá og jafnvel bara í lagi þá, en eins og Sóli Hólm orðaði þetta best, það sem mátti einusinni má bara ekki í dag.

Þessi bylting er komin til að vera, hún er rétt að byrja og hún er EKKI að fara neitt! Við matreiðslumenn verðum að taka þátt í þessu og gera betur. Við þurfum að vera í takti við tíðarandann, passa okkur að þetta sé og verði ekki eitthvað karlrembufag sem fælir konur frá sér.

Okkar frábæra starf er mikilvægt, það opnar dyr að mörgum tækifærum um allan heim og hjálpar okkur að verða betri og klárari, pössum okkur bara að það opni dyr fyrir alla. Ég er hér ekki að tala niður til Klúbbsins, kokka eða námsins, ég er bara að benda á staðreyndir, staðreyndir sem við þurfum að breyta. Enda margt jákvætt og gott búið að gerast síðustu ár.

Við eigum það öll sameiginlegt að við erum kokkar, við náðum öll sveinsprófi og við ákváðum að læra þetta því við höfum áhuga á matreiðslu. Förum nú að koma fram við hvort annað af virðingu, óháð kyni, stöðu eða aldri.

Gerum betur.
Ólöf Jakobsdóttir
Yfirmatreiðslumeistari á veitingahúsinu Horninu.


Bréf sem Ólöf fékk frá kollega sínum eftir ræðuna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona