fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Lýsir ógeðslegri framkomu R Kelly

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 22. maí 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn R Kelly er sagður hafa smitað 19 ára konu viljandi af ólæknandi kynsjúkdómi og brotið gróflega gegn henni kynferðislega.

Stúlkan sem um ræðir heitir Faith Rodgers og hefur hún kært tónlistarmanninn vegna málsins. Faith er ein fjölmargra stúlkna sem borið hafa R Kelly þungum sökum. Hefur verið blásið til herferðar, Mute R Kelly, þar sem 70 þúsund manns hafa hvatt tónlistarveitur og útvarpsstöðvar til að hætta að spila tónlistina hans.

Í viðtali við BBC lýsir Faith því hvernig R Kelly hagaði sér í maí 2017. Hún fékk símtal frá honum þar sem hún bauð henni á tónleika sem hann hugðist halda í New York. Þegar þangað var komið heimsótti tónlistarmaðurinn hana á hótel sem hún valdi á. Það fyrsta sem hann gerði eftir að hann steig inn í herbergið var að skipa henni að fara úr fötunum.

Í viðtalinu lýsir Faith því að R Kelly hafi verið mjög ágengur og sjálf hafi hún í raun frosið, framkoma hans hafi komið henni á óvart. „Ég sagði honum að ég væri ekki tilbúin að stunda kynlíf, að ég stunda ekki kynlíf um leið og ég hitti einhvern í fyrsta skiptið – mér liði ekki vel með að gera slíkt,“ segir hún og bætir við að þarna hafi verið kominn fram skýr vilji hennar um að hún vildi ekki stunda kynlíf með honum.

Hún segir að R Kelly hafi ekki látið segjast, hann hafi haldið áfram að tala dónalega til hennar. Hann hafi strokið hana, sagt henni að kalla sig „pabba“ á meðan hann kallaði hana „litlu dúkkuna sína“.

Í viðtalinu segir Faith að R Kelly hafi brotið gróflega gegn henni; þvingað hana til munnmaka í eitt skipti og gengið mjög harkalega fram í önnur skipti. Hún rifjar upp að eitt atvikið hafi átt sér stað baksviðs á tónleikum sem hann hélt.

„Það var verið að kalla á hann að koma upp á svið en hann hafði engar áhyggjur af því. Hann girti niðrum mig buxurnar, ýtti mér upp að spegli, hélt um hálsinn á mér,“ sagði hún og bætti við R Kelly hafi í kjölfarið brotið kynferðislega gegn henni. „Þetta var harkalegt og vont,“ segir hún. Í kjölfarið komst hún að því að hún væri sýkt af herpes-veirunni og segir hún að R Kelly hafi smitað hana viljandi.

„Ég var eyðilögð, ég skammaðist mín og þetta er ekki eitthvað sem fer. Það erfiðasta var að segja fjölskyldu minni frá því sem gerðist. Ég kenni sjálfri mér um að stóru leyti,“ segir Faith í viðtalinu og bætir við að hún hafi upplifað mörg niðurlægjandi augnablik meðan á sambandi þeirra stóð. Hann hafi margoft tekið samfarir þeirra á milli upp á myndband.

Þá sagði Faith að hún hafi kynnst mörgum konum sem voru nánar R KellyR Kelly hafi kynnt þessar konur líkt og um fjölskyldumeðlimi væri að ræða – allar hafi þær kallað hann pabba. Um hafi verið að ræða einskonar sértrúarsöfnuð. Þannig hafi þurft að kyssa hann á munninn í hvert skipti sem hann kom heim eða kom inn í herbergi. Konurnar hafi í raun verið heilaþvegnar, eins og þrælar á meðan hann hafi verið einskonar drottnari.

R Kelly og þeir sem sjá um almannatengsl hans hafa neitað því að hann hafi gert nokkuð rangt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.