Patrick J. Adams, meðleikari Meghan Markle úr sjónvarpsþáttunum Suits, birti í gær mynd af konu sofandi á flugvelli. Sagði hann konuna hafa móðgað hann eftir að hafa komið auga á mynd af honum og konu hans úr konunglega brúðkaupinu í blaði sem hún var að fletta í.
Adams skrifar í færslu við myndina, sem hann birti á Instagram aðgangi sínum, að konan hafi sagt myndina af þeim hjónum vera einstaklega lélega og henni þætti hann feitlaginn í jakkafötunum sem hann klæddist. Leikarinn var ekki sáttur við þessa afskiptasemi konunnar og eftir að hún sofnaði smellti hann af henni mynd og birti aðdáendum sínum.
Mörgum þótti þetta ómaklegt hjá honum. „Ég bjóst við meiru frá þér. Hún er dónaleg og þetta var algjörlega óþarfi hjá henni, en það var óþarfi hjá þér að hefna þín svona.“ skrifaði einn af fylgjendum Adams. Aðrir sýndu þó leikaranum stuðning og þó nokkrir skrifuðu við færsluna að Patrick og kona hans hafi verið glæsileg í brúðkaupinu, og að konan hefði átt þetta skilið. Patrick virðist þó hafa séð að sér og stuttu síðar hafði hann fjarlægt færsluna af Instagram aðgangi sínum.