Tíminn líður hratt á gervihnattaöld sungu þau Pálmi Gunnarsson, Helga Möller og Eiríkur Hauksson í Eurovision árið 1986. Síðan eru liðin mörg ár.
Það má með sanni segja að við lifum á tíma hraða, breytinga og pressu. Dagarnir þjóta áfram og nýjar byltingar stíga dagsins ljós reglulega. Á stuttum tíma hefur vinnumarkaðurinn breyst gífurlega og fjölskyldulífið með. Konur eru farnar út af heimilinu, börnin komin í daggæslu og mikil pressa er á fólki að standa sig vel í öllu því sem það tekur sér fyrir hendur.
Það telst því varla skrítið að kvíði og fylgikvillar hans herja á marga. Samtök kvíða og þunglyndis í Bandaríkjunum mæla með þessum ráðum fyrir fólk sem upplifir mikla streitu og kvíða:
- Taktu þér frí. Æfðu jóga, hlustaðu á tónlist, hugleiddu, farðu í nudd eða lærðu slökunar aðferðir. Að stíga burt frá vandamálum sínum getur hjálpað þér að hreinsa hugann.
- Passaðu mataræðið. Borðaðu jafnt og þétt yfir daginn og ekki sleppa máltíðum. Hafðu hollt og orkumikið nasl ávallt nálægt þér.
- Takmarkaðu áfengi og koffín en það getur aukið á kvíða og orsakað kvíðaköst.
- Passaðu að þú fáir nægilega mikinn svefn. Þegar þú ert undir álagi þarfnast líkaminn meiri hvíldar.
- Hreyfðu þig daglega.
- Andaðu djúpt inn og út.
- Teldu hægt upp á tíu. Endurtaktu og teldu upp í tuttugu ef þér finnst þú þurfa þess.
- Gerðu þitt besta. Ekki stefna á fullkomnun, það er ómögulegt. Vertu frekar stolt/ur af því hversu vel þér tókst til.
- Sættu þig við það að þú getur ekki stjórnað öllu. Skoðaðu áhyggjur þínar: Er þetta virkilega jafn slæmt og þú heldur?
- Taktu vel á móti allri gleði. Húmor og hlátur kemur okkur öllum langt.
- Haltu í jákvæðni. Reyndu að skipta út neikvæðum hugsunum fyrir jákvæðar.
- Taktu þátt. Vertu sjálfboðaliði eða finndu þér einhverskonar viðfangsefni sem veitir þér stuðning og gefur þér frí frá daglegum áhyggjum.
- Lærðu á þá þætti sem kveikja á kvíðanum þínum. Er það vinnan þín, fjölskyldan, skólinn eða eitthvað annað? Skrifaðu niður hvenær þú hefur áhyggjur og af hverju og leitaðu að mynstri.
- Talaðu við einhvern. Segðu vinum þínum og fjölskyldu að þér finnist hlutirnir yfirþyrmandi. Útskýrðu hvernig þeir geta hjálpað þér. Talaðu við lækni eða sálfræðing og fáðu hjálp.