Hin geysivinsæla hæfileikakeppni Britain‘s Got Talent hóf nýlega göngu sína á nýjan leik í bresku sjónvarpi. Á fyrsta kvöldinu var Marc Spellman meðal þátttakenda og kom hann, sá og sigraði því kynnar þáttarins, Ant og Dec, nýttu Gullna hnappinn sinn og sendu Marc beint í úrslitin. Atriði Marc voru sjónhverfingar sem dóttir hans tók óbeinan þátt í. Óhætt er að segja að atriðið sé eitt það ótrúlegasta og hjartnæmasta í sögu hæfileikakeppninnar.
Einnig kom eiginkona hans við sögu og krabbamein sem hún greindist með og tæknifrjóvganir sem þau hjónin fóru í. Þótti atriðið mjög harmþrungið og snerti við mörgum og er óhætt að segja að tár hafi blikað á mörgum hvörmum.
Dóttir Marc kom fram á myndbandsupptöku og aðstoðaði óafvitandi við sjónhverfingarnar. Þetta er atriði sem lætur engan ósnortinn.