fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Sunna Rós upplifði fordóma eftir tæknisæðingu: „Hef lesið að ég sé að bjóða upp á að barnið mitt verði lagt í einelti“

Aníta Estíva Harðardóttir
Sunnudaginn 29. apríl 2018 12:00

Sunna Rós Baxter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhleypar konur sem kjósa að eignast barn geta í dag farið í tæknisæðingu, sem aðeins var í boði fyrir pör fyrir nokkrum árum. Í viðtali við DV segja fjórar konur sögu sína; ein sem nýbyrjuð er í ferlinu og þrjár sem eignast hafa börn með gjafasæði. Þær reifa ástæðu þess að þær völdu þessa leið, forvitnina og fordómana sem þær hafa mætt og spjalla um börnin sem þær elska meira en allt.

Sunna Rós Baxter er þrjátíu og eins árs gömul og fór í aðgerð í janúar árið 2017. Hún er mjög ánægð með þá þjónustu sem henni var veitt. Sunna á tvö börn en aðeins yngra barnið er getið með sæðisgjafa. Ástæða Sunnu fyrir því að velja þessa aðferð var einföld.

„Ég var einstæð og ég vildi eignast barn. Ég vildi verða ólétt í janúar svo ég fór og lét taka lykkjuna mína í október og fór svo í viðtal hjá IVF klíníkinni í nóvember. Eftir viðtalið fór ég heim með bækling þar sem slóðin inn á sæðisbankann var. Ég skráði mig inn og þar var hægt að sjá alla sæðisgjafana,“ segir Sunna sem er nú í fæðingarorlofi með syni sínum.

„Ég valdi svo einn sæðisgjafa og sendi póst á IVF sem sér um að panta sæði frá þeim gjafa. Í janúar fór ég í uppsetningu og tíu dögum síðar fékk ég jákvætt þungunarpróf.“

Sjö vikum síðar fór Sunna í snemmsónar þar sem staðfest var að hún væri þunguð og að hjartsláttur fóstursins væri eðlilegur.

Hefur lesið ljótar athugasemdir um sjálfa sig

Sunna segir fátt hafa komið henni á óvart í ferlinu sjálfu en að fordómar hafi þó gert vart við sig í kjölfarið.

„Fólk hefur ekki sagt neitt við mig en það hafa verið skrifaðar greinar um mig og þetta ferli mitt og ég hef séð fordóma á netinu frá fólki sem hefur lesið þær greinar. Ég hef séð athugasemdir eins og að ég eigi ekki rétt á leikskóla né læknisaðstoð fyrir barnið mitt vegna þess að fyrst að ég telji mig geta gert þetta ein þá eigi ég að gera þetta alveg ein. Ég hef líka lesið að ég sé að brjóta barnasáttmálann með því að neita barninu um að vera í sambandi við föður sinn en sæðisgjafi er ekki foreldri.“

Sunna Rós Baxter

Sjálf hefur Sunna gefið egg og telur hún sig ekki foreldra þeirra barna sem fæddust í kjölfarið á því.

„Það er enginn að halda mér frá þeim börnum enda eru þau ekki mín börn. Svo hef ég líka lesið að ég sé að bjóða upp á að barnið mitt verði lagt í einelti. Það neyðist enginn til þess að leggja einhvern í einelti, manneskja sem leggur í einelti gerir það vísvitandi og getur engum kennt um nema sjálfri sér. En svona fáfræði hefur engin áhrif á mig,“ segir Sunna og bætir við að hún hafi eignast þetta barn fyrir sjálfa sig, dóttur sína og barnið sjálft.

„Ef fólk ætlar að taka það persónulega inn á sig hvernig ég lifi mínu lífi þá þarf það að eiga það við sjálft sig.“

Gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af maka

Sunna segist einnig hafa orðið vör við mikla forvitni fólks en hún hefur rætt ferli sitt mikið opinberlega.

„Hvaða leið fólk kýs að fara skiptir ekki máli. Ég mæli með því að fólk eignist barn ef það hefur á annað borð áhuga á því. Það sem skiptir máli er viljinn til að eignast barn og eru margar leiðir til þess. Fólk verður að finna hvað hentar sér. Ég hef verið einstæð í níu ár og finnst ég ekki vera að missa af neinu. Ég á vinkonur og ég er í mömmuhópum. Margir af þessum pöbbum gera ekki mikið gagn hvort eð er. Ég myndi sturlast ef ég væri ein að sjá um allt og pabbinn bara í sófanum að slaka á. Mér finnst mjög þægilegt að þurfa ekkert að spá í hvað hann er að gera eða hvaða hlutverk hann á að taka að sér. Ég get haft allt eftir mínu höfði og ef mig vantar pössun þá finn ég út úr því,“ segir Sunna aðspurð hvort henni finnist ekki erfitt að vera eina foreldrið.

„Ég þarf ekkert frí frá því að vera foreldri, en stundum langar mig eða þarf að gera eitthvað sem börn eru ekki velkomin í og þá fæ ég pössun. Að hugsa um þessi börn mín ein er jafn eðlilegt fyrir mér eins og að hugsa um sjálfa mig ein. Fólki finnst væntanlega ekkert mál að fara sjálft á klósettið, baða sig sjálft og að tyggja matinn sinn og allt þetta. Kannski væri lífið auðveldara ef þú þyrftir bara að gera helminginn, en til hvers að fá einhvern til þess að tannbursta þig og klæða annan hvern dag þegar þetta er ekkert mál?“

Sunna segir að bæði börnin hennar séu mjög róleg og sé hún heppin að því leyti.

„Til þess að barn alist upp hamingjusamt þá þarf það ekki að eiga mömmu og pabba. Það eina sem það þarf er forráðamaður sem elskar það skilyrðislaust, gefur barninu frelsi til þess að vera það sjálft og nýtur þess að verja tíma með því.“

Hægt er að fylgjast með Sunnu á Snapchat: sunnabaxter

Lestu einnig: Sigga Lena opnar sig um tæknisæðingu : Fékk boð um sæði og stefnumót

Lestu einnig: Svava segir frá reynslu sinni eftir tæknisæðingu: „Það var ótrúleg gleðistund þegar ég fékk jákvætt út úr blóðprufunni“

Lestu einnig: Heidi segir frá reynslu sinni af tæknisæðingu: „Mér finnst í þessu tilfelli konur njóta forréttinda“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433
Fyrir 12 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum
433
Fyrir 12 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“