fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Sigga Lena opnar sig um tæknisæðingu: Fékk boð um sæði og stefnumót

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 28. apríl 2018 20:53

Sigga Lena

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhleypar konur sem kjósa að eignast barn geta í dag farið í tæknisæðingu, sem aðeins var í boði fyrir pör fyrir nokkrum árum. Í viðtali við DV segja fjórar konur sögu sína; ein sem nýbyrjuð er í ferlinu og þrjár sem eignast hafa börn með gjafasæði. Þær reifa ástæðu þess að þær völdu þessa leið, forvitnina og fordómana sem þær hafa mætt og spjalla um börnin sem þær elska meira en allt.

Sigga Lena vonast til að fara í uppsetningu á næstu mánuðum.

Sigríður Lena Sigurbjarnardóttir er þrjátíu og tveggja ára gömul og er teymisstjóri í sjálfstæðri búsetu fyrir fatlaða og í hlutastarfi hjá Blush.is. Sigríður Lena, sem er alltaf kölluð Sigga Lena, er líka bloggari hjá síðunni fagurkerar.is þar sem hún hefur meðal annars tjáð sig um ferlið.

Sigga Lena er nýlega búin að velja sér sæðisgjafa og er næsta skref því uppsetning á sæði sem hún vonast til að farið verði í á næstu mánuðum.

„Það er spurning hvort við getum sagt að þetta sé eigingirni, já, ætli það ekki. Mig langar í barn, er búin að langa það mjög lengi. Ég hef enn ekki fundið þann eina rétta, búin að deita nokkra froska á leiðinni og hreinlega nenni ekki að bíða lengur. Þar sem þessi leið er í boði fyrir konur þá ætla ég mér að nýta hana,“ segir Sigga Lena en henni þykir ferlið þó nokkuð tímafrekt.

„Þú hefur samband við stöðina Livio og pantar tíma fyrir fyrsta viðtal. Þegar það er komið færðu sendan spurningalista sem þú þarft að svara og færð beiðni í blóðprufu sem þú verður að vera búið að fara í fyrir viðtalið. Blóðprufuna þarf að taka á öðrum til þriðja degi blæðinga. Í viðtalinu er farið yfir mjög margt og þú ert vel skoðuð í sónar og farið er yfir hvaða meðferð myndi henta þér best.“

Tók sér góðan tíma til þess að velja sæðisgjafa

Eftir viðtalið þurfti Sigga Lena að bíða í tvo mánuði eftir viðtali hjá félagsráðgjafa.

„Mér fannst algjör snilld að tala við félagsráðgjafann, hún gaf mér góða innsýn í hlutverk sem einstök móðir og lét mig hugsa vel út fyrir kassann. Eftir það viðtal tók við val á sæðisgjafa sem getur verið mjög flókið verkefni. Ég tók mér alveg góða tvo til þrjá mánuði að lesa yfir og velja það sem hentaði mér og mínum forsendum.“

Það tók Siggu Lenu nokkurn tíma að þora að mæta í viðtalið og afbókaði hún tvisvar sinnum áður en hún mætti loksins.

„Mér fannst ég bara ekki vera 100 prósent tilbúin og afbókaði því fyrstu tvo tímana. En svo þegar þriðji tíminn var pantaður þá dembdi ég mér út í þetta og sé alls ekki eftir því.“

Með einni uppsetningu mun ferlið kosta Siggu Lenu í kringum 450 þúsund krónur en hefur hún þó gert ráð fyrir því að þurfa mögulega þrjár uppsetningar.

„Það myndi þá kosta mig í kringum 600 þúsund krónur, en ég þarf samt vonandi ekki að nýta mér allar uppsetningarnar. Ferlið er ekkert niðurgreitt, en það er þó hægt að sækja um styrk til stéttarfélaga.“

Hefur upplifað mikla forvitni og vill opna umræðuna

Sigga Lena segist ekki enn hafa mætt neinum fordómum frá fólki heldur einungis jákvæðni og hvatningu.

„Ég hef hins vegar upplifað afar mikla forvitni. Ég held að það sé aðallega vegna þess að ég er mjög opin um þetta og fólk er óhrætt við að tala og spyrja mig spjörunum úr. Samstarfsmenn mínir eru líka mjög forvitnir um þetta allt saman og finnst gaman að fá að fylgjast með. Ég ákvað strax að vera opin um þetta og var það sérstaklega vegna þess að mér fannst vera svo lítið af upplýsingum um þetta ferli á Íslandi. Málið er samt að þegar ég opnaði á umræðuna þá fékk ég ógrynni af skilaboðum frá konum sem eru búnar með ferlið og eru að hvetja mig áfram. Ég fékk líka skilaboð frá þeim sem hafa verið í sömu hugleiðingum en ekki þorað að taka skrefið. Þær hafa svo ákveðið að stíga skrefið eftir að ég fór að tala um þetta.“

Sigga Lena segist ekki eingöngu hafa fengið skilaboð frá kvenmönnum en eftir að fyrsta viðtalið við hana kom út hringdi í hana eldri maður sem vildi endilega bjóða fram aðstoð sína.

„Hann sagði að hann hefði alltaf langað í börn og að þetta væri kjörið tækifæri fyrir okkur bæði til þess að láta drauminn rætast. Ég afþakkaði bara pent boðið og þegar ég skellti á gat ég ekki annað en hlegið mig máttlausa ásamt því að vera með mesta hroll sem ég hef fengið. En skilaboðin á Facebook skipta tugum frá karlmönnum sem vilja aðstoða mig við barneignir. Það versta er að þetta eru allt saman menn sem eru mjög svo gamlir og einhverjir af þeim með skerta greind. En svo eflaust einhverjir sem vilja bara hjálpa.  Ég er alveg komin með nóg af þessum skilaboðum, þarf ekki fleiri. Ef ég ætlaði þá leið að sofa hjá einhverjum karlmanni til þess að láta barna mig, þá, og trúið mér, væri ég sko löngu búin að því.“

Fékk boð um sæði og stefnumót

Sigga Lena hefur einnig verið boðið á stefnumót eftir að hún opnaði sig um ferlið en hún segir að það hafi ekki verið neitt sérstaklega heillandi.

„Það var nú bara í síðustu viku sem einn bauð mér sæðið sitt. Þegar ég var búin að afþakka það ákvað hann í staðinn að bjóða mér á stefnumót á Gamla vínhúsið. Æ, þetta er ekki heillandi, sérstaklega ekki þegar þú ert búinn að vera að bjóða fram aðstoð þína við barneignir.“

Siggu Lenu finnst virkilega vel haldið utan um ferli sitt hjá Livio og segist vera með frábæran lækni sem hún treysti fullkomlega.

„Málið er að þegar ég fór að pæla í þessu fyrir um fjórum árum þá vissi ég varla hvar ég átti að byrja að leita mér upplýsinga. Þegar ég gúglaði þá komu bara upp umræður á Blandi eða eitthvað í þá áttina. Það var lítið af fræðilegum upplýsingum nema kannski um hvernig tæknisæðing fer fram, hvar kaupa á sæði og um kostnaðinn. Þetta er svolítið það sem ég vil breyta, núna er ég að snappa og blogga um allt það sem fylgir þessu ferli og ég vil deila því með þeim sem vilja hlusta eða lesa. En aðalmálið er kannski að mig langar að búa til lítinn gagnagrunn þar sem konur í sömu hugleiðingum geta leitað að svo þær þurfi ekki að byrja á núlli. Ég hefði alveg verið til í að komast í slíkar upplýsingar þegar ég byrjaði ferlið.“

Betri kostur en að fara niður í bæ og verða ólétt á þann veginn

Sigga Lena mælir óhikað með þessu ferli fyrir þær konur sem eru í sömu hugleiðingum og hún sjálf.

„Þetta er mun betri kostur en að fara niður í bæ og ná sér í mann korter í þrjú og verða ólétt á þann veginn. Sjálfri finnst mér það bara ekkert heillandi og því tel ég að barneign með gjafasæði sé mun betri valkostur.“

Sigga Lena var í sambúð fyrir nokkru sem endaði mjög illa. Síðan þá hefur hún ekki farið í sambúð með öðrum manni.

„Eins og ég sagði áður, þá hef ég deitað fjölmarga froska og það var meira að segja einn sem ég hélt að væri kannski að verða prins, en það var ekki svo gott. Svo getur líka vel verið að með aldrinum verði maður kröfuharðari á hitt kynið sem er kannski ekki alveg það albesta,“ segir Sigga Lena og hlær.

Ómetanlegur stuðningur

Sigga Lena segist alls ekki vera hrædd við að eignast barn ein, en þó votti fyrir örlitlu stressi.

„Jú, jú, ég er stressuð. En stuðningurinn sem ég hef frá mínum nánustu, fjölskyldu og vinum, er ólýsanlegur. Ég er alls ekki að segja að þetta verði ekkert mál og það vakna upp margar spurningar. Hvað ef barnið verður magaveikt, hvað ef þetta og hvað ef hitt? En sem betur fer, eins og ég segi, þá er stuðningurinn sem ég nýt alveg ótrúlegur og ég veit að ég get leitað til margra ef mig vantar aðstoð. Málið er að ef maður vill eitthvað nógu mikið, þá á maður ekki að gefast upp. Það er aldrei of seint að láta drauma sína rætast.“

Hægt er að fylgjast með ferli Siggu Lenu á Snapchat: siggalena

Lestu einnig: Sunna Rós upplifði fordóma eftir tæknisæðingu: „Hef lesið að ég sé að bjóða upp á að barnið mitt verði lagt í einelti“

Lestu einnig: Svava segir frá reynslu sinni eftir tæknisæðingu: „Það var ótrúleg gleðistund þegar ég fékk jákvætt út úr blóðprufunni“

Lestu einnig: Heidi segir frá reynslu sinni af tæknisæðingu: „Mér finnst í þessu tilfelli konur njóta forréttinda“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Áhugaverðar niðurstöður úr leikmannakönnun – Eitt nafn afar áberandi

Áhugaverðar niðurstöður úr leikmannakönnun – Eitt nafn afar áberandi