Instagram er orðið eitt vinsælasta samfélagsmiðlaforrit nútímans og engan skal furða. Þar er bæði hægt að setja inn fallegar myndir með texta ásamt því að hlaða niður því sem kallast „story“.
Margir hafa instagram-reikning sinn opinn í þeim tilgangi að deila með heiminum myndum af því sem þau taka sér fyrir hendur.
Bleikt hefur virkilega gaman af því að skoða opinbera „instagrammara“ og höfum við tekið upp nýjan lið. Alla sunnudaga langar okkur til þess að deila með lesendum áhugaverðu og skemmtilegu fólki sem á það sameiginlegt að vera með opið instagram.
Í dag byrjum við á því sýna ykkur nokkrar áhugaverðar myndir frá söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu og leikkonunni Birnu Rún Eiríksdóttur. Að sjálfsögðu hvetjum við ykkur til þess að fylgjast með þessum stórglæsilegu konum.
Jóhanna Guðrún:
Hægt er að fylgjast með Jóhönnu á Instagram undir notandanafninu: yohannamusic
Birna Rún Eiríksdóttir:
Hægt er að fylgjast með Birnu Rún á Instagram undir notandanafninu: birnaruneiriks