fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Mæður og feður skora á stjórnvöld að leggja fram ásættanlegt samningstilboð: „Ótti og kvíði verðandi foreldra er nú á ábyrgð stjórnvalda“

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 27. apríl 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íris Tanja Ívarsdóttir Flygenring leikkona og móðir ásamt fleiri nýbökuðum mæðrum og feðrum hafa sent frá sér áskorun til stjórnvalda.

„Við erum óttaslegin og áhyggjufull um framtíð barna okkar vegna aðgerðaleysis stjórnvalda gagnvart kjarabaráttu ljósmæðra. Við lýsum yfir fullum stuðningi við ljósmæður og förum fram á að samið verði við þær strax. Margar eigum við líf okkar og barna, okkar ljósmæðrum að þakka og teljum augljóst að starf þeirra, menntun, reynsla og álag sé ekki réttilega metið til launa,“ segir í áskorun þeirra.

Vanvirðing stjórnvalda fyrir starfi ljósmæðra

„Aðgerðaleysi stjórnvalda í lengri tíma er með öllu óásættanlegt og verður ekki skilið öðruvísi en sem vanvirðing fyrir starfi ljósmæðra sem og börnunum sem von er á í heiminn. Flótti úr stéttinni, skortur á heimaþjónustu fyrir hvítvoðunga og sængurkonur, ótti og kvíði verðandi foreldra er nú á ábyrgð stjórnvalda.“

Íris, ásamt fleirum skora á stjórnvöld að leggja fram ásættanlegt samningstilboð strax.

„Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Svandís Svavarsdóttir, sýnið ljósmæðrum virðingu í verki og semjið við þær, það er svo mikið í húfi.“

Hvetja þau nýbakaða og verðandi foreldra til þess að taka þátt í áskoruninni með því að deila myndum af sér með myllumerkinu #égstyðljósmæður skrifað á magann ásamt áskoruninni í heild sinni:

Áskorun til stjórnvalda frá verðandi og nýbökuðum mæðrum og feðrum:

Við erum óttaslegin og áhyggjufull um framtíð barna okkar vegna aðgerðaleysis stjórnvalda gagnvart kjarabaráttu ljósmæðra. Við lýsum yfir fullum stuðningi við ljósmæður og förum fram á að samið verði við þær strax. Margar eigum við líf okkar og barna, okkar ljósmæðrum að þakka og teljum augljóst að starf þeirra, menntun, reynsla og álag sé ekki réttilega metið til launa.

Aðgerðaleysi stjórnvalda í lengri tíma er með öllu óásættanlegt og verður ekki skilið öðruvísi en sem vanvirðing fyrir starfi ljósmæðra sem og börnunum sem von er á í heiminn.

Flótti úr stéttinni, skortur á heimaþjónustu fyrir hvítvoðunga og sængurkonur, ótti og kvíði verðandi foreldra er nú á ábyrgð stjórnvalda.

Við skorum á stjórnvöld að leggja fram ásættanlegt samningstilboð strax. Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Svandís Svavarsdóttir, sýnið ljósmæðrum virðingu í verki og semjið við þær, það er svo mikið í húfi.

Kæru nýbökuðu og verðandi foreldrar takið þátt og deilið myndum af ykkur með myllumerkinu #égstyðljósmæður skrifað á magann og deilið þessari áskorun með!

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast undirskriftarlista til stuðnings ljósmæðra:

Stuðningsyfirlýsing við kjarabaráttu ljósmæðra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum