Reglulega koma upp nýir megrunarkúrar sem fólk stekkur á og vonast til þess að það sé sá eini rétti fyrir þau og muni komi þeim í draumaformið.
Nýjasti kúrinn kallast Miðjarðarhafskúrinn og nú þegar hafa fimm rannsóknir frá læknisdeild Harvard greint frá því að þessi kúr sé sá besti til þess að hjálpa fólki að grennast.
Ekki nóg með það að vera góður fyrir aðhaldið þá hefur þetta mataræði einnig góð áhrif á hjartað, augun og heilann. Hann á jafnvel að hjálpa fólki að lifa lengur.
Samkvæmt Popsugar er einnig auðveldara að aðlaga sig Miðjarðarhafskúrnum heldur en til dæmis keto mataræði sem og föstum.
Lisa Mastela matarráðgjafi sagði að mataræðið ætti að fylgja þessari formúlu: Helmingurinn máltíðar á að vera grænmeti/ávextir, einn fjórði á að innihalda kornmeti og einn fjórði á að innihalda fisk eða annan próteingjafa sem einnig inniheldur örlítið af heilbrigðri fitu.
Morgunmatur:
Hádegismatur / Kvöldmatur:
Millimál / Eftirréttir: