Leikarinn John Travolta segir skilið við gömlu töffaraímynd sína í spennutryllinum Moose, sem fyrrum Limp Bizkit-söngvarinn Fred Durst leikstýrir ásamt því að vera annar tveggja handritshöfunda.
Um er að ræða ádeilu á skemmtanaiðnaðinn og fjallar myndin um stórstjörnuna Hunter Dunbar, leikara sem verður áreittur af þráhyggjufullum aðdáanda. Travolta leikur eltihrellinn og er persónan sögð vera byggð á vafasömum aðdáanda sem Durst komst í kynni við sjálfur á yngri árum.
Tökur myndarinnar hófust í mars í Atlanta-fylki í Bandaríkjunum og stendur til að frumsýna myndina undir loks ársins eða snemma 2019. Moose er þriðja kvikmyndin í fullri lengd frá Durst og hefur samstarfið milli hans og Travolta gengið með prýðindum.
Leikarinn segir í samtali við miðilinn TMZ að tökurnar séu á meðal hans uppáhalds frá upphafi ferils síns. Þá hrósar hann Durst og segir hann algjöran fagmann. „Hann er svo mikill listamaður og gaf mér frjálsan taum til að skapa persónu sem enginn annar hefði leyft mér. Þetta er afar villtur karakter.“
Að neðan má sjá fleiri ljósmyndir úr tökum myndarinnar.