Sex ára gamall sonur Hönnu Katrínar Finnbogadóttur lenti í miður skemmtilegu atviki um helgina þegar hann var staddur að leik, ásamt föður sínum og þriggja ára systur fyrir utan Hólabrekkuskóla.
„Hann var á hlaupahjóli með hjálm og var að renna sér í brekku frá göngustígnum sem leiðir inn skólalóðina. Á sama tíma kemur drengur á bensínvespu með farþega aftan á og klessir á son minn. Strákurinn minn reyndi að bremsa eins og hann gat en ekki náðist að koma í veg fyrir árekstur,“ segir Hanna Katrín sem vil brýna fyrir foreldrum hversu mikilvægt það sé fyrir börn á vespum að vera í viðeigandi hlífðarfatnaði og með hjálm.
„Drengirnir á vespunum sem voru 14-15 ára gamlir stöðvuðu eftir að hafa keyrt á son minn og sögðu við hann : „Hvað í fokkanum varstu að gera?!“ Maðurinn minn heyrði í þeim og snögg reiðist, hleypur í áttina að þeim og spyr hvað þeim gangi til. Drengirnir voru voða töffarar og svöruðu með skætingi. Sögðust til að mynda aðeins hafa verið á 20 kílómetra hraða og spurðu hvaða máli þetta skipti.“
Hanna Katrín segir að maðurinn hennar hafi séð að drengirnir voru glottandi og gerðu lítið úr atvikinu.
„Þeir töluðu sín á milli annað tungumál og heyra mátti hæðnistón þó ekki skildist hvað þeir voru að segja.“
„Fyrir mér skiptir það bara hellings máli að börnin mín séu óhult úti að leika á skólalóðinni. Hvað ef þetta hefði verið 3 ára stelpan mín sem hefði orðið fyrir vespu á 20 kílómetra hraða? Eða ég sjálf með 8 mánaða barnið mitt í vagni og vespan hefði klesst á vagninn?“
Að sögn krakka sem þarna vöru í kring var þetta ekki í fyrsta skiptið sem þessi sami drengur keyrir á krakka.
„Sá sem keyrði vespuna var með hjálm en ekki í neinum hlífðarfatnaði, sá sem sat aftan á var hvorki með hjálm, né í hlífðarfatnaði. Sem betur fer duttu þeir ekki sjálfir af því annars hefðu þeir örugglega slasast. Sonur minn fékk mar á síðuna eftir áreksturinn. Eftir á að hyggja hefði maðurinn minn átt að hringja í lögregluna en í hita leiksins þá gleymdist það.“
Hanna biður foreldra barna sem keyra um á vespum að taka sér tíma og ræða við börnin sín að fara varlega.