Brianna Bundick-Kelly, háskólanemi í Virginiu-fylki, er gríðarlegur aðdáandi söngkonunnar Beyoncé og sló í gegn þegar hún birti myndband af sér herma eftir danssporum stórstjörnunnar.
Myndbandið var birt á Twitter, þar sem stúlkan gengur undir nafninu Bryonce og þykir flókni dansinn óaðfinnanlegur hjá henni. Að eigin sögn varð þetta til skömmu eftir að hafa horft á tónleika með Beyoncé. Vildi hún meina að henni dauðleiddist heima og eyddi hún í kjölfarið 40 mínútum í að æfa dansinn frá grunni.
„Ég hugsaði: þetta vil ég geta gert… nei bíddu, ég get gert þetta. Ég ætla að gera þetta.“
Brianna hefur verið dansari frá átta ára aldri og samkvæmt sögum hefur myndbandið skapað svo mikið umtal að framleiðendur í skemmtanabransanum hafa þegar komið sér í samband við hana.
Sjá má umræddu danssporin hér að neðan.
If you thought I was about to sit here, learn choreo & dance like I’m one of Beyoncé’s backup dancer… YOU’RE ABSOLUTELY RIGHT!????#BeyChella pic.twitter.com/157vovRFjG
— Briyonce (@imbriyonce) April 18, 2018