fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Chris Pratt opnar sig um einkalífið: „Skilnaður er ömurlegur“

Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 20. apríl 2018 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum að vinna í leiðum til þess að halda vináttunni og vera góð hvort við annað. Það er ekki alveg upplagt, en ég held að við séum bæði á miklu betri stað”, segir leikarinn Chris Pratt í spjalli við Entertainment Weekly.

Leikarinn hafði fram að viðtalinu ekkert tjáð sig um einkalífið eftir skilnaðinn við leikkonuna Önnu Faris og sagði hlutina þar hreint út: „Skilnaður er ömurlegur”.

Pratt og Faris hafa þekkst síðan 2007 þegar þau kynntust við tökum myndarinnar Take Me Home Tonight og voru gift í átta ár. Saman eiga saman fimm ára soninn Jack og segir Pratt að sé engin spurning um að einbeita sér að honum, í sameiningu en sitthvoru lagi. „Þegar upp er staðið eigum við frábæran krakka sem á tvo foreldra sem elskar hann“.

Leikkonan hefur verið dugleg að svara fyrirspurnum og opnað sig í viðtölum, til dæmis tekið fram að slúðursögur um framhjáhöld Pratts hafi óneitanlega tekið sinn toll, að það hafi heldur ekki verið auðvelt að ala upp soninn ein á meðan leikarinn léki í hverri stórmyndinni á eftir annarri.

Pratt er einmitt væntanlegur í tveimur risamyndum nú í sumar, Avengers: Infinity War og Jurassic World: Fallen Kingdom.

Faris er sjálf væntanleg í gamanmyndinni Overboard í maí, nýbúin að gefa út minningarbókina Unqualified og er um þessar mundir að slá sér upp með tökumanninum Michael Barrett, en hann skaut meðal annars myndina Overboard.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.