fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Erla Kolbrún snappar frá Kleppi: „Ég var komin á botninn og gat lífið ekki“

Aníta Estíva Harðardóttir
Sunnudaginn 15. apríl 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erla Kolbrún Óskarsdóttir lenti í læknamistökum árið 2012 þar sem laga átti endaþarmssig sem hún fékk í kjölfar fæðingar yngri dóttur sinnar. Síðan þá hefur Erla barist við mikla og óbærilega verki sem ekki er hægt að laga. Eftir aðgerðina varð Erla afar þunglynd og sjálfsvígshugsanir herjuðu á hana daglega. Nýlega var Erla lögð inn á Klepp vegna mikillar vanlíðunar og ákvað hún að leyfa fólki að fylgjast með meðferðinni í gegnum Snapchat.

„Snapchat hjálpar mér á svo marga vegu. Ég get talað beint við símann og opnað mig með allt án þess að þurfa horfa framan í manneskju. Þótt ég viti að það eru nokkur þúsund manns að horfa, en það mætti segja að Snapchat sé eitt af mínum meðferðarúrræðum,“ segir Erla í viðtali við blaðakonu.

Hefur áður legið inni á geðdeild vegna sjálfsvígshugsana

Erla er gift Andrési Þór Helgasyni og saman eiga þau tvær stelpur, Alexöndru Ösp og Magdalenu Eik.

„Ég er menntuð lyfjatæknir, útskrifaðist árið 2013, en ég hef aldrei geta unnið við það vegna aðgerðarinnar. Læknirinn notaði úrelta aðferð og yfirlæknir á kvennadeild staðfesti að um læknamistök hefði verið að ræða. Í sex ár hef ég barist við mikla og óbærilega taugaverki sem ekki er hægt að laga.“

Erla hefur áður legið inni á geðdeild Landspítalans vegna sjálfsvígshugsana og að hennar sögn var sú lega ágæt.

„En þar fékk ég ekki hjálpina sem ég þurfti. Ég reyndi sjálf að fara til fagaðila eins og sálfræðinga út í bæ en fann mig ekki og datt því út úr meðferðarrútínunni. Ég snappaði mikið í gegnum þá reynslu og það hjálpaði mér mjög mikið. Að fá að rausa um mína vanlíðan, og líka vellíðan, og fá viðbrögð frá fylgjendunum mínum gaf mér svo mikið.“

Var neitað um innlögn á Reykjalund

Vanlíðan Erlu hefur farið stigvaxandi undanfarin ár og vegna þess vildi geðlæknir hennar að hún yrði lögð inn á endurhæfingardeild á Reykjalundi.

„En þar var mér neitað á mjög leiðinlegan hátt. Ástæða neitunarinnar var að ég væri of veik.“

Þá barst talið að því að sækja um vist fyrir Erlu á Kleppi.

„Ég er í innlögn á svokallaðri fimm daga deild. Ég fer heim um helgar og nýt þess að vera hjá fjölskyldunni minni en á virkum dögum er ég í prógrammi á Kleppi. Ég fæ aðstoð við að komast í meðferðarrútínu eins og ég kalla það. Fæ aðstoð við að byrja í hreyfingu og kennslu í að slaka á. Því var ég alveg búin að gleyma. Hér er sálfræðiaðstoð og læknaþjónusta, prógrammið er mjög fjölbreytt og flott.“

Innlögnin á Klepp meðal annars til þess að létta undir með eiginmanninum

Erla segist njóta þess að liggja inni á Kleppi þar sem hún fær mikið utanumhald frá starfsfólki.

„Ég fékk til dæmis mjög slæmt verkjakast í gær enda keyrði ég mig aðeins út. Hjúkrunarfræðingurinn og sjúkraliðinn sem voru á vakt voru yndislegir og vildu allt fyrir mig gera. Ég er ein í krúttlegu herbergi sem er bara æði og það fer mjög vel um mig hérna.“

Aðaltilgangur innlagnar Erlu var að létta undir með henni sjálfri við daglegt amstur lífsins en einnig til þess að létta undir með eiginmanni hennar.

„Hans hlutverk í mínu lífi er rosalega stórt og er örugglega mjög erfitt starf. Hann og stelpurnar mínar eru búin að upplifa mikið með mér undanfarin sex ár og ég var komin svo gjörsamlega á botninn að ég gat horfst í augu við lífið. Þannig að fyrir alla var innlögnin skynsamlegust.“

Snappar frá Kleppi

Erla mun dvelja á Kleppi í að lágmarki fjórar vikur en að þeim tíma liðnum verður líðan hennar skoðuð og ákvörðun tekin um hvort hún þurfi lengri tíma.

„Að vera á Kleppi í dag er allt annað en það var fyrir einhverjum árum. Það eru margar þjóðsögur um að það að vera á Kleppi sé svakalega slæmt, en það er bara ekki þannig. Kannski var það þannig einhvern tímann en í dag er það alls ekki slæmt.“

Erla þakkar fyrir Snapchat á hverjum degi þar sem hún getur í gegnum það forrit verið í miklum samskiptum við fjölskyldu sína.

„Snapchat hefur hjálpað mér á svo marga vegu. Ég á svo yndislega fylgjendur sem peppa mig alltaf upp og senda mér yndisleg skilaboð. Það gefur mér svo mikið að fá allan þennan stuðning.“

Hægt er að fylgjast með ferli Erlu Kolbrúnar á Snapchat undir notandanafninu: erlak85

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Fundurinn í London gekk ekki vel

Fundurinn í London gekk ekki vel
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Mia Khalifa viðurkennir að hún sé á Ozempic

Mia Khalifa viðurkennir að hún sé á Ozempic
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.