fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Matur

Skotheld uppskrift af vatnsdeigsbollum og fjórar mismunandi fyllingar frá Hrönn Bjarna

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 11. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bolludagurinn er á mánudaginn og því algjörlega við hæfi að skella í nokkrar bollur.

Ég hef sjálf aldrei verið mikið fyrir bakaríisbollur og finnst miklu betra að baka þær sjálf og fylla með einhverju nýju og spennandi.

Ég er hér með grunnuppskrift af vatnsdeigsbollum og svo er ég með 4 mismunandi útfærslur á fyllingum í bollurnar

 

Grunnuppskrift – vatnsdeigsbollur (15 stk)

  • 250 g vatn
  • 125 g smjör
  • 1 tsk salt
  • 140g hveiti
  • 3-4 egg (ég notaði 3 egg)

Ofninn er hitaður í 200°.

Vatn, smjör og salt sett í pott og brætt saman þar til suðan kemur upp. Þá er potturinn tekinn af hellunni og hveitinu skellt útí og allt hrært saman þar til alveg samblandað. Þá er potturinn aftur settur á helluna í ca. 2 mínútur til að samlaga blönduna betur. Deigið á að vera vel samblandað og gljáandi þegar það er tekið úr pottinum og því skellt í hrærivélaskál og spaðinn settur í hrærivélina (ekki þeytarinn). Best er að hræra deigið í ca 1 mínútu til að kæla þar örlítið og svo eru eggin sett útí, eitt í einu. Þegar deigið er orðið slétt, glansandi og vel teygjanlegt er það tilbúið. Þá er það sett í sprautupoka (helst með stjörnustút) og sprautað á ofnplötu með bökunarpappír. Mikilvægt að hafa gott bil á milli.

Bollurnar eru bakaðar í ca. 25-28mínútur. Athugið að opna ekki ofninn of snemma því þá geta bollurnar fallið !

IMG_1223

Baileys espressó fylling

  • 1 pakki royal karamellubúðingur
  • 0,5 dl svart kaffi
  • 0,5 dl baileys
  • 2,5 dl rjómi
  • 1,5 dl mjólk

Allt hrært saman með handþeytara og blandan svo látin kólna og stífna. Setjið blönduna í sprautupoka með fallegum stút. Skerið bollurnar í sundur og sprautið blöndunni á neðri helming og lokið bollunni.

  • 100g rjómasúkkulaði
  • 2 mtks rjómi
  • 1 mtks baileys

Allt brætt saman og látið kólna og þykkna örlítið og smyrjið yfir fyllta bolluna.

IMG_1216

Jarðarberja og bananafylling

  • 1 banani
  • 8-10  jarðarber
  • 3 dl rjómi

Stappið banana og jarðarber saman með gaffli. Þeytið rjómann og blandið öllu saman. Skerið bollurnar í sundur og smyrjið blöndunni á neðri helming og lokið bollunni.

  • 100g rjómasúkkulaði
  • 2 mtsk rjómi

Allt brætt saman og látið kólna og þykkna örlítið og smyrjið yfir fyllta bolluna.

IMG_1211

Saltkaramellukurl fylling

  • 50 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 50 g sýróp
  • 75 g smjör
  • 125 ml rjómi

Bræðið púðursykur, sykur, sýróp og smjör í potti og látið sjóða í 3 mínútur og hrærið stöðugt í á meðan. Takið pottinn af hellunni og hellið rjómanum útí og látið blönduna jafna sig og hrærið svo vel saman þar til allt er samblandað. Kælið karamellusósuna þar til hún þykknar.

  • 3dl rjómi
  • 1 poki karamellukurl frá Nóa Síríus
  • 100g suðusúkkulaði
  • 2 mtsk rjómi

Þeytið rjómann (4dl) og hrærið útí hann karamellukurli og  setjið í sprautupoka (ekki nauðsynlegt)
Bræðið suðusúkkulaði og rjóma (2tsk) saman og látið kólna þar til súkkulaðið þykknar. Skerið bollurnar í sundur og setjið vel af karamellusósunni á botninn. Sprautið þeyttum rjóma yfir  karamellusósuna og lokið bollunni. Smyrjið súkkulaði yfir fyllta bolluna og drissið vel af karamellusósu yfir. Stráið loks karamellukurli yfir herlegheitin.

IMG_1226

Nutella súkkulaðifylling

  • 3 dl rjómi
  • Nutella
  • 100g rjómasúkkulaði
  • 2 mtsk rjómi
  • 4 mtsk Nutella

Þeytið rjómann (4dl) og setjið í sprautupoka.

Bræðið rjómasúkkulaði og rjóma (2mtsk) og látið kólna þar til súkkulaðiblandan þykknar.

Skerið bollurnar í sundur og setjið vel af Nutella á botninn. Sprautið þeyttum rjóma yfir Nutella og lokið bollunni. Smyrjið súkkulaðiblöndunni yfir fyllta bolluna. Setjið 4 mtsk Nutella í sprautupoka og sprautið litla toppa yfir súkkulaðið uppá skraut.

Í þessari fyllingu er algjör draumur að bæta við söxuðum bananabitum útí rjómann ef fólk vill.

IMG_1234

Hefðbundin bolla

  • jarðarberjasulta
  • 3 dl rjómi
  • suðusúkkulaði
  • 2mtsk rjómi

Skerið bollurnar í sundur og smyrjið vel af jarðarberjasultu á botninn. Setjið vel af rjóma yfir sultuna og lokið bollunni.

Bræðið suðusúkkulaði og rjóma saman og látið kólna aðeins. Smyrjið súkkulaði yfir bolluna.

 

Gleðilegan bolludag !!!!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa