Tara Margrét Vilhjálmsdóttir er menntaður félagsráðgjafi og formaður Samtaka um líkamsvirðingu. Tara hefur verið áberandi í Íslensku samfélagi undanfarin ár sem dyggur talsmaður líkamsvirðingar og hefur hún unnið hörðum höndum að því að stöðva fitusmánun. Uppáhalds jólahefð Töru er keppni milli fjölskyldumeðlima sem kallast „í kjólinn fyrir jólin.“
Það er bara mismunandi, ekki föst hefð en við kíkjum stundum austur á Flúðir í skötu til tengdaömmu og afa ef þannig liggur á okkur.
Pabbi setti skoðanakönnun í loftið sem við eigum enn eftir að fá niðurstöður úr svo það er enn óljóst. Valmöguleikar voru hamborgarhryggur, grilluð nautalund og grilluð lambalund. Sjálf gerði ég ekki miklar kröfur þetta árið, bara að maturinn þurfi að uppfylla kröfur ketó, paleo- og south beach mataræðisins.
Það verður alltaf að vera einhver jólafitusmánun. Klassíkin er auðvitað „ertu viss um að þú ætlir að fá þér meira af jólaísnum?”. Þá fyrst mega jólin koma fyrir mér!
Jólahefðin í fjölskyldunni er að fara í keppni um að „komast í kjólinn fyrir jólin” og/eða „sjá tólin fyrir jólin”. Um er að ræða afar gott hópefli sem færir okkur jólaandann á silfurfati hver jól.
Eftirminnilegustu jólin voru jólin 2012, ég fékk ÞRJÁ stóra konfektkassa frá Nóa Síríus og var búin að torga þeim öllum á annan í jólum! Þvílík jól!
Uppáhalds jólalagið mitt er klárlega „Jólafeitabolla” með Morðingjunum! Algjör klassík!
Já ég fékk einu sinni kartöflu í skóinn og át hana samstundis með bestu lyst, hráa og allt! Hefðuð átt að sjá svipinn á mömmu og pabba!
Svo lengi sem það er góður matur á boðstólum geri ég ekki upp á milli þessara daga.
Ég ætla að strengja sama áramótaheit og undanfarin ár en það er að halda áfram baráttu minni fyrir að fita upp þjóðina og fjölga þannig í hópi okkar feitabolla. Heimsyfirráð eða dauði!