Móðurhlutverkið getur tekið á og það er nokkuð ljóst að að það er ekki mikil glansmynd sem fylgir því að koma nýjum einstakling í heiminn. Leikkonan Rachel McAdams sannaði hins vegar í nýrri myndatöku sem hún var í fyrir tímaritið Girls.Girls.Girls að nýbakaðar mæður geta algjörlega verið kynæsandi.
Leikkonan sýndi fram á það að þrátt fyrir að vera glansmyndarleikkona í myndatöku, þá er móðurhlutverkið alltaf númer eitt, tvö og þrjú. Á forsíðu tímaritsins má sjá leikkonuna vel puntaða, í hátískufötum og með brjóstapumpuna á sér.
Ljósmyndarinn sem tók myndirnar, Claire Rothstein sagði að á milli þess sem Rachel hafi verið að sitja fyrir, hafi hún verið að pumpa sig þar sem barn hennar er enn á brjósti.
„Ég er ekki alveg viss um það hver okkar átti hugmyndina um að taka myndina af henni vera að pumpa sig en ég er nokkuð viss um að það hafi verið hún og það fær mig til þess að elska hana enn þá meira,“ sagði ljósmyndarinn og Bored Panda greindi frá.