Íþróttakonan Margrét Gnarr, einkaþjálfari og margfaldur fitnessmeistari, segist oft fá spurningu um hvernig eigi að styrkja rassinn og gera hann stinnan og lögulegan. Margrét gefur fylgjendum sínum á Instagram fjögur góð ráð hvað þetta varðar og má sjá þau hér að neðan.
1. Byrjaðu á 1-2 æfingum þar sem þú einangrar rassvöðvana og virkjar þá. Ég geri oft þrjú sett af Fire Hydrant með mótstöðuteygju áður en ég fer í að gera aðrar rass- eða fótaæfingar.
2. Settu fókusinn á rassinn í öllum fótaæfingum sem þú gerir! Ef þú ert að gera hnébeygjur, til dæmis, þá skaltu reyna að setja þungann í hælana og fókusa á rassvöðvana.
3. Less is more! Þú þarft ekki að lyfta mjög miklum þyngdum og oft eru litlu þyngdirnar betri en þær þyngri. Ef þú ert að lyfta mjög þungum hlutum þarftu líklega að nota fleiri vöðvahópa til koma þyngdinni upp.
4. Borðaðu! borðaðu! borðaðu! Vöðvarnir okkar þurfa hitaeiningar til að stækka svo þú átt ekki að takmarka hitaeiningainntökuna ef þú vilt stækka og styrkja rassinn.
Margrét segir að mataræði hennar samanstandi að mestu af hollri vegan-fæðu en stundum leyfi hún sér að borða vegan-„ruslfæði“ þegar hún fær þörfina fyrir því.
Margrét er býsna virk á Instagram þar sem hún gefur fylgjendum sínum reglulega góð ráð.