Margir þekkja þann hvimleiða vanda að daginn fyrir löngu áformað útstáelsi mæti ein ófyrirleitin og óvelkomin bóla sem gerir sig heimakomna á áberandi stað. Slíkar bólur eru sérstaklega hrifnar af hökum, kinnum, ennum og að sjálfsögðu nefum. Hvílík óskammfeldni !
Alls konar húsráð hafa gengið mönnum á milli um hvernig sé best að særa burt þennan djöful. Tannkrem, grænt te, hafragrautur, stinga, kreista og sótthreinsa. En húsráð sem þú hefur líklega ekki heyrt um er að nota hælsærisplástur.
Innra lag hælsærisplástra er yfirleitt úr efni sem kallast hydrocolloid. Þetta lag getur dregið í sig óhreinindi og olíur úr bólunni, og síðan heldur plásturinn utanaðkomandi óhreinindum í burtu. Plásturinn kemur líka í veg fyrir að þú sért að fikta í bólunni og hætt þannig á að dreifa óhreinindunum og orsakað fleiri bólur.
Hægt er að kaupa hydrocolloid plástra sem eru sérstaklega hannaðir fyrir bólur. Þá eru þeir oft minni en hælsærisplástrarnir. En það virka alveg jafn vel að nota hælsærisplástur, þá er hægt að klippa niður og nota einn plástur á margar bólur.
Þægilegast er að nota plásturinn yfir nóttu en ef þeir eru klipptir smekklega niður er alveg hægt að bera þá yfir daginn án þess að margir taki eftir.
Svo næst þegar bóla fer í taugarnar á þér, prufaðu að skella á hana einum hælsærisplástri !