Leikarinn Richard Madden segir að móðir sín hafi hringt í sig í ofboði og skammað hann fyrir að vara sig ekki við kynlífssenunni í þáttunum Bodyguard. Madden kemur fram nakinn í þáttunum vinsælu, sem sýndir eru á Netflix, og sést vel í rassinn á honum. Hann segir í viðtali í Ellen DeGeneres Show að foreldrar sínir hafi ekki verið sáttir við hann að fá ekki viðvörun um að hann kæmi fram nakinn.
„Ég hef gert fjölmörg mistök í gengum tíðina, ein af þeim stærstu var að gleyma að segja mömmu að það væri kynlífssena í þáttunum. Ég fékk símtal þar sem mamma var æst og æpti á mig: „Þú þarft að segja foreldrum þínum frá svona! Ég var að drekka te yfir þættinum og missti hann næstum yfir mig!“, sagði Madden.
„Núna heldur hún fyrir augun.“