Jólin snúast um samveru, frið og kærleika. Þau snúast ekki um dýrustu gjafirnar, flestu kökusortirnar, stærstu skreytingarnar, hreinasta húsið og flottustu fötin.
Við eigum það til að týna okkur í hamaganginum í desember og ganga fram af líkama og sál. Gúffa í okkur öllu óhollu sem fyrir okkur verður í stresskasti yfir öllu því sem þarf að gera áður en sá tuttugasti og fjórði rennur í garð.
En vitið þið hvað, jólin koma þó þau séu ekki fullkomin – og við megum ekki gleyma því sem jólin snúast um þó það sé ekki búið að skúra og það séu ekki 10 sortir af smákökum í bakka á borðinu. Jólin snúast um að setjast niður og njóta saman. Þó það sé á náttfötunum. Þó það sé ekki búið að skúra. Þó að allir fái litlar persónulegar jólagjafir sem kostuðu ekki nýra.
Í ár gerði ég samning við vinkonur mínar – að við myndum frekar taka okkur tíma til að hittast og njóta í desember eða janúar, í staðin fyrir að gefa hvor annarri jólagjafir. Fyrir mér er samveran svo miklu mikilvægari en eitthvað plast drasl í pappír!
Sleppum óþarfanum, léttum aðeins undir hjá okkur – fyrir okkur. Höldum jól á náttfötunum, borðum góðan mat og njótum þess að vera saman.
Ef þér finnst jólastress erfitt og leiðinlegt.
Gerðu eitthvað í því, finndu leiðir til að gera jólin bærilegri.
Ég er með nokkur ráð sem gætu létt undir jólastressi:
Skoðaðu hvort þú getir ekki verslað eitthvað af gjöfunum á netinu og fengið sent heim. Það eru fullt af íslenskum vefsíðum sem bjóða upp á heimsendingu.
Virkjaðu fjölskylduna í innpökkun á gjöfum – mamma lét mig alltaf hjálpa, svo það varð að hefð og bara gaman að setjast niður öll saman og pakka inn.
Eins og ég sagði áður – keyptu náttföt á línuna til að vera í á aðfangadag (ef þið eigið ekki spariföt/náttföt fyrir).
Bakið kannski eina eða tvær sortir saman með fjölskyldunni fyrir jólin ef tími gefst.
Settu mörk á hvað gjafir eiga að kosta og farðu eftir því.
Byrjaðu snemma að týna að þér jólagjafir og reyndu að vera skipulögð með verk sem þú vilt endilega koma í verk fyrir jól.
Ekki setja daglegt líf á hold allan desember, haltu áfram að borða hollt, hreyfa þig, staldra við og njóta! Týnum okkur ekki í stressinu og hamaganginum.
Færslan er skrifuð af Svandísi Þóru og birtist upphaflega á Vynir.is