Ljóst er að vaxtaræktarkonan Sara Heimisdóttir hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið því kærasti hennar, Chris Miller, þurfti að dögunum að fara undir læknishendur á ný. Að hennar sögn þurfti hann að gangast undir hjartaþræðingu.
Sara greinir frá þessu á Instagram. „Ástin mín þurfti að fara aftur á spítalann vegna eftirkasta og óeðlilegs hjartalínurits. Hann fékk hjartaþræðingu og gekkst undir aðra aðgerð í gær. Hann er kominn aftur heim og líður betur. Svo stolt af þér elskan,“ skrifar Sara.
Sjá einnig: Kærasti Söru Heimis hætt kominn eftir hjartaáfall – „Ég var mínútum frá því að missa hann“
Stutt er síðan Miller var hætt kominn eftir hjartaáfall en DV greindi frá því í október að hjartaloka Miller hafi nánast verið stífluð til fulls. Þá fullyrti Sara að ekki sé hægt að kenna sterum um, þó að áralöng þjálfun Chris í vaxta- og líkamsrækt hafi tekið sinn toll af honum. „Læknar telja að um hjartagalla sé að ræða,“ sagði Sara.
Sara hefur vakið talsverða athygli á undanförnum árum en hún var eitt sinn eiginkona líkamsræktarmannsins Rich Piana. Samband þeirra vakti mikla athygli hér á landi enda lifðu þau hátt og bjuggu í ógnarstóru húsi í Los Angeles. Þau skildu sumarið 2016 en rúmu ári síðar lést Piana af völdum hjartaáfalls.
https://www.instagram.com/p/BrLlpROgcTh/