Ekki leyfa þér að dæma…
…mig þó ég geti ekki hitt þig núna.
…mig þó ég geti ekki spjallað akkurat núna.
…mig þó að ég komist kannski ekki í allar allar veislur eða viðburði.
…mig þó heimilið mitt sé í rúst og ég liggi í sófanum og hreyfi mig ekki.
Vefjagigt er eitt það óútreiknanlegasta sem þarf að lifa með. Hvað þá þegar heimurinn er komin ansi stutt á veg með að samþykkja þennan sjúkdóm en ekki dæma fólk sem aumingja og letingja.
Mér líður kannski rosalega vel í dag en eins og skriðdreki hafi rúllað yfir mig á ógnarhraða á morgun. Ég veit aldrei hvað bíður mín, ég get aðeins beðið af mér storminn og reynt að gera allt sem ég get gert og kann að gera til þess að lina verkina og setja plástur á sálina. Hvað sem það er, þá er ég að gera mitt besta til þess að hjálpa sjálfri mér.
Við skulum fara aðeins yfir einkennin í stuttu máli svo þið skiljið betur.
„Allir vefjagigtarsjúklingarnir eru með langvinna stoðkerfisverki. Algengastir eru þrálátir seiðingsverkir í hálsi og herðum sem og í mjóbaki og á utanverðum mjaðmasvæðum. Auk þess eru margir með verki í upp- og framhandleggjum, stundum með dreifðum verkjum í höndum og samfarandi kraftleysi/klaufsku. Verkir í lærum og kálfum eru einnig algengir, einnig verkir í iljum og tábergi. Þannig eru sumir vefjagigtarsjúklingar „alverkja”. Margir segja verkina að öllu jöfnu vera 5-7 stig á 10-skala en aðrir skora verkina 8-9 stig. Til viðbótar þessum stöðugu verkjum kvarta margir yfir stirðleika í skrokknum sem getur verið æði hamlandi. Þannig segjast margir sjúklingar vakna endurtekið um nætur bara við það að snúa sér í rúminu. Eins draga verkir með stirðleika oft úr hreyfifærni á morgnanna.“ Tekið úr grein eftir Arnór Víkingsson.
Athugið að einkennalistinn er ekki tæmandi
A. Einkenni sem nánast allir hafa Útbreiddir stoðkerfisverkir Stirðleiki Þreyta Svefntruflanir |
Einkenni sem allir hafa Áberandi á nóttunni og morgnana Vaknar þreyttur eða búinn með orkuna fljótt. Sefur laust, vaknar oft yfir nóttina |
B. Geðheilsa og hugsun Þunglyndi Kvíði Heilaþoka |
Ýmist orsakaþáttur eða afleiðing vefjagigtar. Ýmist orsakaþáttur eða afleiðing vefjagigtar Fylgir gjarnan þreytu og streitu |
C. Einkenni tengd ósjálfráða taugakerfinu Hjarta- /æðakerfi Öndunarfæri Meltingarfæri Þvagfæri/kynfæri Húð Háls, nef, eyru Ónæmiskerfi Taugakerfi |
Hraður hjartsláttur, lágur blóðþr., hand-/fótkuldi Hósti, hæsi, andþyngsli, takverkur Kviðverkir, hægðaóregla, fæðuóþol, ógleði Tíð þvaglát, blöðruverkir, slæmir tíðaverkir Þurrkur, roði, þroti, kláði Suð, hella svimi, nefstífla, slímhúðarþurrkur Flensulíðan, lengi að jafna sig eftir sýkingu Fótapirringur, dofi, jafnvægisleysi & fl & fl. |
Þegar ég segist ekki geta hitt þig er þetta ástæðan.
Stundum læt ég mig hafa það og borga svo þrefalt fyrir það daginn eftir og ég lofa það er alveg þess virði.
Að vera 29 ára og horfast í augu við það að vera með vefjagigt er ekki eitthvað sem ég bjóst við að þurfa að gera. Þegar ég hugsa til baka þá hef ég sennilega byrjað mjög ung að fá einkennin en engin kveikt á perunni fyr en núna síðustu ár. Ég þakka fyrir að þekkingin á þessum hvimleiða sjúkdómi aukist dag frá degi.
Núna þegar ég er komin í starfsendurhæfingu þá mun ég læra betur að tækla þetta vandamál, ég mun læra að tækla verkina, geðsjúkdómana, sjálfa mig og lífið. En þangað til þarf ég þolinmæði og skilning.
Ég er að gera mitt besta.
Ég er ekki löt – Ég er kannski bara að eiga erfiðan dag.
Ekki dæma mig.
Takk Hannes, ástin mín fyrir að vera kletturinn minn og skýla mér þegar erfiðustu vindkviðurnar reyna að feykja mér til fjandans, takk fyrir að halda mér á jörðinni og leyfa mér aldrei að efast um sjálfa mig. Takk, takk fyrir þig.
Færslan er skrifuð af Valkyrju Söndru Á. Bjarkadóttur og birtist upphaflega á mæður.com.